Reiknivél

skattaafsláttur

Reiknivél

Mánaðarlegar tekjur: 300.000 kr
kr.
kr.

Endurgreiðsla

0 KR.

Skattþrep miðað við mánaðarlegar tekjur

31,45%

Heildarframlög á ári

0 KR.

MEIRI STYRKUR

FYRIR SÖMU UPPHÆÐ

Þökk sé lögum um skattalega hvata til almannaheillastarfsemi geta einstaklingar dregið að hámarki 350 þúsund krónur á ári frá skattskyldum tekjum sínum vegna framlaga til UNICEF á Íslandi. Styrkur einstaklings þarf að lágmarki að vera 10.000 kr. á ári til að hann sé frádráttarbær.

Eins og fram kemur í spurt og svarað hér fyrir neðan þá er það eina sem þú þarft að gera er að ákveða að styrkja UNICEF á Íslandi. Hvort heldur sem er með mánaðarlegum framlögum sem Heimsforeldri, með stökum styrk í neyðarsöfnun, frjálsu framlagi eða kaupum á Sönnum gjöfum UNICEF á sannargjafir.is. UNICEF á Íslandi sér svo til þess að Skatturinn fái upplýsingar um gjafir og framlög þín á hverju almanaksári og umræddar upplýsingar eru í framhaldinu forskráðar á skattframtal þitt vegna næstliðins tekjuárs.

SPURT OG SVARAÐ UM SKATTAFSLÁTTINN

Já! Í nóvember 2021 tóku gildi ný lög um skattalega hvata til almannaheillastarfsemi. Lögin fela í sér nýja heimild fyrir einstaklinga til að draga allt að 350 þúsund krónur á ári frá skattskyldum tekjum sínum utan atvinnurekstrar vegna framlaga til almannaheillastarfsemi, eins og UNICEF. Styrkur einstaklings þarf að lágmarki að vera 10.000 kr. á ári til að hann sé frádráttarbær. Auk þess er kveðið á um tvöföldun á hlutfalli sem atvinnurekstraraðilar mega draga frá skattskyldum tekjum vegna slíkra framlaga sem fer úr 0,75% í 1,5%.

Eina sem þú þarft að gera er að ákveða að styrkja UNICEF á Íslandi. Hvort heldur sem er með mánaðarlegum framlögum sem Heimsforeldri, með stökum styrk í neyðarsöfnun, frjálsu framlagi eða kaupum á Sönnum gjöfum UNICEF á sannargjafir.is. UNICEF á Íslandi sér svo til þess að Skatturinn fái upplýsingar um gjafir og framlög þín á hverju almanaksári og umræddar upplýsingar eru í framhaldinu forskráðar á skattframtal þitt vegna næstliðins tekjuárs.

Já, styrkur einstaklings á ári þarf að lágmarki að vera 10.000 kr. til að hann sé frádráttarbær. Lögin fela í sér nýja heimild fyrir einstaklinga til að draga allt að 350.000 krónur á ári frá skattskyldum tekjum sínum utan atvinnurekstrar vegna framlaga til almannaheillastarfsemi.

Ef þú styrkir UNICEF á Íslandi um t.d. 20 þúsund krónur færðu skattafslátt að fjárhæð 7.600 krónur. UNICEF á Íslandi fær þessar 20 þúsund krónur til góðra verka, en þú greiðir í raun aðeins 12.400 krónur þegar upp er staðið. Þú getur því annað hvort látið það sama af hendi rakna til góðgerðarmála fyrir minna eða hækkað framlag þitt, greitt það sama og áður en eini munurinn er að hærri fjárhæð rennur til UNICEF. 

Tökum dæmi:

Heimsforeldri sem hefur um árabil styrkt UNICEF á Íslandi um 50.000 krónur á ári, eða rúmar 4.000 krónur mánaðarlega, fær nú skattafslátt að fjárhæð 19.000 kr. Ef viðkomandi hefur samband við UNICEF og hækkar framlag sitt upp í alls 69.000 kr. á ári, eða 5.750 kr. mánaðarlega, greiðir hann í raun áfram það sama og áður árlega, eða 50.000 krónur og fær mismuninn endurgreiddann frá Skattinum. UNICEF fær hins vegar alla fjárhæðina til góðra verka fyrir börn um allan heim.

Hafa ber í huga að í ofangreindum dæmum er gert ráð fyrir skattahlutfalli meðaltekna. Tekjuskattshlutfall er breytilegt milli einstaklinga.

Þú getur hækkað eða lækkað framlag þitt hvenær sem er! Þú sendir okkur einfaldlega línu á netfangið unicef@unicef.is eða hefur samband í síma 552 6300. Við græjum þetta fljótt og örugglega.

Þú skráir þig sem Heimsforeldri með því að hafa samband við okkur í síma 552 6300 eða með því að skrá þig á heimasíðu UNICEF.