Skilmálar

  • Öll vinnsla kreditkortanúmera á netinu fer í gegnum vottaða greiðslusíðu Teya og er dulkóðuð svo að öryggi sé tryggt. 
  • UNICEF heitir fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem styrktaraðili gefur upp í gegnum heimasíðu UNICEF. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila en nánar má lesa um meðferð UNICEF á persónuupplýsingum á eftirfarandi slóð: www.unicef.is/personuvernd 
  • UNICEF lýtur lögum um meðferð persónuupplýsinga. 
  • Með því að gerast Heimsforeldri samþykki ég að fá upplýsingar með tölvupósti um baráttu UNICEF. Ef ég af einhverjum ástæðum samþykki ekki þessa skilmála UNICEF á Íslandi um tölvupóst er mér velkomið að hafa samband við skrifstofu UNICEF á Íslandi í gegnum tölvupóstfangið unicef@unicef.is eða í síma 552 6300. 
  • Sérákvæði varðandi Múmín verkefni: Lágmarks binditími áskriftar eru 6 mánuðir frá nýskráningu. Viðtakandi greiðir sendingarkostnað af fyrstu póstsendingu í Múmínverkefninu sem inniheldur Múmínleikhúsið. Hægt er að sækja Múmínleikhúsið á skrifstofu UNICEF á Strandgötu 75, Hafnarfirði en mikilvægt er að hafa samband í gegnum tölvupóstfangið unicef@unicef.is eða í síma 552 6300 og láta vita ef viðtakandi vill sækja. 
  • Múmínleikhúsið og fylgihlutir eru ekki ætlaðir börnum undir 3 ára aldri.
  • Öll söfnun UNICEF á Íslandi er í nafni Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna – UNICEF.