24. janúar 2014

Skiptidótamarkaður ungmennaráðs UNICEF

Ungmennaráð UNICEF stendur fyrir skiptidótamarkaði, á Borgarbókasafni við Tryggvagötu, sunnudaginn næstkomandi milli klukkan 15:00-16:30.

Börnum er boðið að koma á markaðinn með leikföng, bækur og spil sem þau eru hætt að leika sér með, leggja þau inn í leikfangasafn ungmennaráðsins og velja sér önnur leikföng í staðinn.

„Leikur sameinar öll börn, hvar svo sem þau kunna að búa og þjónar mikilvægu hlutverki í þroska hvers einstaklings.  Með skiptidótamarkaðnum vill með ungmennaráð UNICEF skapa vettvang þar sem börn fá tækifæri til að leika sér um leið og þeim er gefið tækifæri til að læra umhverfið sitt og samfélag,“ segir Hjördís Eva Þórðardóttir, réttindafræðslufulltrúi UNICEF á Íslandi.

Fræðsla um réttindi, sjálbærni og barnasáttmálann

Fulltrúar ungmennaráðs UNICEF komu saman á Borgarbókasafninu í gær og hófu undirbúning skiptidótamarkaðarins. „Það er ótrúlega gaman að vinna með þessu efnilega unga fólki og sjá þennan mikla eldmóð og metnað sem býr í þeim,“ bætir Hjördís við.

Á markaðnum munu fulltrúar í ungmennaráðinu leika við börnin á sama tíma og þau fræða þau um endurnýtingu, sjálfbærni og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn