18. desember 2019

Skólabörn á Skagaströnd kaupa vatnsdælu í stað jólapakka

Enn berast okkur gleðitíðindi af góðverkum Íslendinga fyrir jólin sem ylja okkur svo sannarlega um hjartarætur

18. desember 2019 Enn berast okkur gleðitíðindi af góðverkum Íslendinga fyrir jólin sem ylja okkur svo sannarlega um hjartarætur. Nú var verið að benda okkur á að nemendur og starfsfólk Höfðaskóla á Skagaströnd ætli sér að breyta út af vananum á litlu jólunum og sleppa pakkaskiptum. Þessi í stað hyggst hvert heimili leggja til þúsund krónur í söfnun fyrir kaupum á vatnsdælu í Sönnum gjöfum UNICEF.

Samkvæmt tilkynningu á vef Höfðaskóla segir að vel hafi verið tekið í söfnunina og að til að mynda hafi ein amma komið með þúsund krónur fyrir hvert barnabarn sem hún á í skólanum.

Þá segir á vef skólans að stefnt sé á að ljúka söfnuninni og kaupa dæluna á morgun, 19. desember.

Þetta er ótrúlega fallega gert af nemendum og starfsfólki Höfðaskóla og engin spurning að þessi gjöf mun koma sér vel. Vatnsdælurnar sem hægt er að kaupa á Sannargjafir.is geta séð heilu þorpi fyrir hreinu drykkjarvatni og mikilvægi þess verður aldrei metið til fjár.

Uppsetning dælanna hefur líka margvísleg jákvæð áhrif á samfélagið og bætir líf kvenna og barna verulega. Þau sleppa við að ganga langar leiðir eftir vatni í fötu en það að sækja vatn fyrir heimilið lendir oftast á herðum kvenna og barna.

Takk fyrir stuðninginn krakkar og takk fyrir stuðninginn Höfðaskóli!

Fjallað er um málið á vef Feykis í dag

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn