19. desember 2019

Skólabörnin á Skagaströnd keyptu vatnsdælu og meira til í morgun

Það er óhætt að segja að söfnun nemenda og starfsfólks Höfðaskóla á Skagaströnd hafi gengið vel.

Átakið Heilabrot sem ungmennaráðið okkar stóð fyrir sló í gegn og hafði mikil áhrif. Við erum ótrúlega stolt af þeim.

19. desember 2019 Það er óhætt að segja að söfnun nemenda og starfsfólks Höfðaskóla á Skagaströnd hafi gengið vel. Eins og greint var frá í gær ákváðu börnin og starfsmenn að sleppa því að skiptast á jólapökkum á litlu jólunum og kaupa þess í stað Sanna gjöf af UNICEF. Stóð til að kaupa eina vatnsdælu en söfnuninni lauk í gær.

Á vef skólans í morgun er greint frá því að söfnunin hafi farið fram úr væntingum og safnast alls 90.500 krónur sem duga fyrir gott betur en einni vatnsdælu. Starfsfólk og nemendur komu saman í morgun til að kaupa gjafirnar í sameiningu á Sannargjafir.is.

Auk vatnsdælunnar keyptu þau fimm hlý teppi, þrjá fótbolta og þrjá ofurhetjupakka sem innihalda bóluefni gegn mænusótt, mislingum og stífkrampa, kælibox og næringarríkt jarðhnetumauk fyrir vannærð börn.

„Við viljum þakka öllum þeim sem lögðu pening í söfnunina, án ykkar hefði þetta ekki orðið að veruleika,“ segja skólastjórnendur á vef skólans. „Það er dýrmætt að sjá samfélagið okkar standa saman í svona söfnun, hún kennir börnunum okkar allra svo margt.“

Starfsfólk UNICEF á Íslandi tekur undir hvert orð hér og sendir krökkunum í Höfðaskóla, starfsfólki skólans og öllum aðstandendum ástarþakkir fyrir stuðninginn og þetta frábæra framtak.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn