Á undanförnum vikum opnuðu margir skólar í Idlib dyrnar á ný til að taka á móti nýjum nemendum. Eftir meira en sjö ár af stríði hefur aðgengi milljóna barna í Sýrlandi að skóla verið takmarkaður og því ríkti gleði í bekkjunum. Ótti við óvissu framtíðarinnar og mögulegar árásir á héraðið vofa þó yfir.
„Við byrjuðum skólaárið í algjörri óvissu um hvað myndi gerast ef stórfelldar árásir myndu hefjast á Idlib. Foreldrar hafa áhyggjur af því að senda börnin sín í skólann og sumir foreldrar hafa ekki skráð börnin sín yfir höfuð sökum þessa. Börn halda þó áfram að mæta og við erum með mikið af áhugasömum börnum sem eru ánægð með að setjast aftur á skólabekk, enda hafa mörg þeirra ekki verið í skóla í fleiri ár,“ segir kennari í suðurhluta Idlib-héraðs sem UNICEF ræddi við.
Börnin bera merki um alvarleg áföll
Í Idlib, sem er hérað í norðvesturhluta Sýrlands og er undir stjórn uppreisnarmanna, búa nú um þrjár milljónir manna. Þangað streymir enn fólk á flótta frá öðrum svæðum Sýrlands. Í héraðinu býr nú stærsti hluti barna á flótta innan Sýrlands og fjöldi skólabarna í skólum í Idlib hefur aukist í samræmi við það.
Í skólunum eru börn sem hafa flúið frá austur-Ghouta, Hama, Deraa, Aleppo og fleiri stöðum innan Sýrlands. Mörg börnin hafa flúið oftar en einu sinni, sum allt að sex sinnum. Óttinn við mögulegar árásir stjórnarhersins á héraðið og að skólinn verði skotmark loftárása hefur þó áhrif á skólahaldið, eins og sögur barnanna sem fylgja hér að neðan bera vitni um. Ef bardagar harðna gæti skólum verið lokað og börn svipt von um bjartari framtíð. UNICEF áætlar að um 1 milljón barna í Idlib séu í hættu.
„Það ríkir enn mikill ótti meðal okkar, meðal barnanna og fjölskyldna þeirra. Ef ráðist yrði inn í Idlib myndu afleiðingarnar vera skelfilegar, ekki bara fyrir óbreytta borgara heldur einnig fyrir menntakerfið. Við óttumst um heila kynslóð,“ segir kennarinn sem UNICEF ræddi við.
Mörg barnanna í skólanum bera merki um alvarleg áföll. Kennarinn lýsir því að hafa séð nemendur fela sig undir skrifborðum þegar bílar valda hávaða á götunni fyrir utan skólann, því þau halda að það sé verið að gera árás.
UNICEF er á staðnum
Þrátt fyrir að aðgengi hjálparstofnana að héraðinu sé takmarkaður vinnur UNICEF í Sýrlandi náið með samstarfsaðilum í Idlib, vesturhluta Aleppo og í norður Hama til að útvega lífsnauðsynlega hjálp og bregðast við miklum straumi fólks á flótta innan landsins. Þetta felur meðal annars í sér að útvega hreint vatn og hreinlætisaðstöðu og tryggja börnum vernd, menntun og næringu.
UNICEF og samstarfsaðilar leggja allt kapp í að börnin geti fengið viðeigandi menntun með því að styðja við og endurbyggja skóla á svæðinu, þjálfa kennara og útdeila námsgögnum. Í skólunum fá börnin einnig stuðning til að vinna úr áföllum sínum.
Þrátt fyrir hrikaleg áhrif stríðsins á menntakerfið í Sýrlandi, þar sem skólar hafa verið sprengdir eða notaðir í hernaðarlegum tilgangi, hófu 4 milljónir barna í Sýrlandi nýtt skólaár. UNICEF skuldbindur sig til að ná til allra barna og leggur þunga áherslu á að ná til þeirra tveggja milljóna barna um allt Sýrland sem eru ekki í skóla, meðal annars með því að setja upp bráðabirgða kennslusvæði til að koma í veg fyrir „týnda kynslóð“ barna sem fer á mis við menntun.
„Við munum ekki hætta að kenna. Við munum fylgja nemendunum hvert sem þau fara og setja upp kennsluaðstöðu þar,“ segir kennarinn.
UNICEF á Íslandi hefur staðið fyrir neyðarsöfnun fyrir börn á flótta frá Sýrlandi. Hægt er að styrkja hana með því að senda sms-ið Hægt er að styrkja hana með því að senda sms-ið STOPP í númerið 1900 í númerið 1900 (1.900 krónur).






