„Þessar myndir láta engan ósnortinn og sýna svo ekki verður um villst að gera þarf meira til að vernda börnin. Börn eiga aldrei sök á stríði,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Áhrifamikil uppstilling UNICEF var afhjúpuð við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York í gær en þar hafði verið komið fyrir 3.758 skólatöskum svo þær litu út eins og legsteinar. Hver taska táknar þar eitt barn sem lést á átakasvæðum á síðasta ári.
Sýningin mun standa yfir þar til á morgun, 10. september, og er hún skýr skilaboð UNICEF til þjóðarleiðtoga um allan heim sem sækja munu Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna á næstunni nú þegar skólar eru víða nýhafnir eða að hefjast. Enginn bakpokanna mun fara til spillis því þeim verður síðan komið áfram til barna til að styðja við menntun þeirra.
„Bakpokar UNICEF hafa alltaf verið tákn um von og möguleika æskunnar,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF. „Eftir hálfan mánuð munu þjóðarleiðtogar koma hér saman á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna til að fagna 30 ára afmæli Barnasáttmálans. Þessi sýning ætti að minna þá á hvað er í húfi.“
Tólf þúsund börn drepin eða örkumluð
Samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um stöðu barna á stríðssvæðum þá létu tólf þúsund börn lífið eða slösuðust alvarlega á átakasvæðum í fyrra. Er þetta mesti fjöldi síðan SÞ hófu að fylgjast með og greina frá þessum alvarlegu brotum. Og þetta eru aðeins staðfestu tilfellin, rauntölur eru að líkindum miklu hærri. UNICEF Áætlar að í fjórðungi þessara tilfella hafi börn týnt lífi.