24. júní 2005

Skýrsla UNICEF eftir sex mánuði

Ný skýrsla UNICEF um neyðaraðgerðir- og þróunaraðstoð á flóðbylgjusvæðunum við Indlandshaf er komin út nú þegar 6 mánuðir eru liðnir frá atburðunum þar sem yfir 200 þúsund manns misstu lífið og sem skildu um 1,5 milljón börn eftir hjálparþurfi.

Ný skýrsla UNICEF um neyðaraðgerðir- og þróunaraðstoð á flóðbylgjusvæðunum við Indlandshaf er komin út nú þegar 6 mánuðir eru liðnir frá atburðunum þar sem yfir 200 þúsund manns misstu lífið og sem skildu um 1,5 milljón börn eftir hjálparþurfi. Þú sérð skýrsluna hér.

Skýrslan er 35 síður og þar gefur að líta yfirlit og sögur frá hverju landi fyrir sig, yfirlit yfir hvernig fjárstuðningi hefur verið varið og upplýsingar um áframhaldandi þróunarstarf sem beint er að börnum.

Markmið UNICEF er að tryggja réttindi og velferð barna. Undir þeim markmiðum hefur UNICEF skipulagt og þróað áframhaldandi aðstoð með ríkisstjórnum og samstarfsaðilum í tengslum við heilsu, menntun og vernd „Tsunami-kynslóðarinnar“ sem nú vex úr grasi.

Hvert þeirra átta landa sem lentu í flóðbylgjunni hafa mismunandi þarfir, allt frá því að endurbyggja skóla til að koma á viðunandi vatns- og hreinlætiskerfi. UNICEF styrkir hvert land fyrir sig og fer eftir heildaráætlun hverrar ríkisstjórnar um uppbyggingu.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn