31. janúar 2014

Skýrsla UNICEF um stöðu barna í heiminum varpar ljósi á árangur og áskoranir

Með markvissri baráttu gegn barnadauða síðastliðin ár hefur tekist að bjarga 90 milljón börnum frá dauða. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, um stöðu barna í heiminum sem út kom í gær. Skýrslan sem ber heitið State of the World´s Children 2014 in numbers geymir langyfirgripsmestu tölfræðiupplýsingar sem fyrir liggja um stöðu barna um víða veröld.

Skólasókn í fátækustu ríkjum heims hefur aukist verulega og yfir 80% barna á grunnskólaaldri í þeim löndum hefja nú nám í skóla. Á heimsvísu hafa aldrei fleiri stúlkur stundað nám en nú.

Í skýrslunni kemur fram að gríðarmikill árangur hefur náðst frá því að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var samþykktur árið 1989 og á því tímabili sem unnið hefur verið að Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Dauðsföllum af völdum mislinga hefur sem dæmi fækkað um 82% síðan árið 2000. Mislingar eru bráðsmitandi veirusýking sem er ein helsta dánarorsök barna yngri en fimm ára í heiminum. Þennan árangur má að miklu leyti rekja til aukinna bólusetninga.

Auk þess vekur athygli að markviss inngrip hvað varða næringu barna hafa haft í för með sér 37% lækkun á tíðni vanþroska hjá börnum á heimsvísu á rúmlega tuttugu ára tímabili. Börn sem þjást af langvarandi vannæringu eru oft kölluð vanþroska (e. stunted) en þá er langvarandi skortur á viðeigandi næringu farinn að hafa áhrif á vöxt og þroska barnsins.

Meginþráður skýrslu UNICEF er að hvert einasta barn skipti máli og mikilvægt sé að ná til allra barna. Samtökin hvetja til þess að aukinn þungi verði settur í gagnaöflun til að finna þær gloppur sem koma í veg fyrir að börnin sem helst eiga undir högg að sækja í heiminum fái notið réttinda sinna.

Börnin sem „ekki eru til“

Skýrsla UNICEF varpar ljósi á þær áskoranir sem takast verður á við til að tryggja rétt allra barna. Enn deyja 18.000 börn á dag af ástæðum sem hægt er að fyrirbyggja – oft með einföldum og ódýrum hætti. UNICEF mun ekki láta staðar numið fyrr en ekkert barn lætur lífið af orsökum sem sannarlega er hægt að koma í veg fyrir.

Í skýrslunni kemur fram að 11% stúlkna í heiminum eru giftar fyrir 15 ára aldur sem aftur ógnar rétti þeirra til góðrar heilsu, menntunar og verndar. Barnaþrælkun er veruleiki 15% barna í heiminum. Þau verða að stunda vinnu sem kemur í veg fyrir að þau njóti skólagöngu og tómstunda – og stofnar jafnvel lífi þeirra í hættu.

Einnig kemur fram í skýrslunni að bæta þarf fæðingarskráningar enn frekar. Þótt ástandið hafi batnað mikið eru enn 230 milljón börn hvergi skráð og þar með formlega „ekki til“. Með þessu eru þau útsettari fyrir skorti á grunnþjónustu og hvers kyns réttindabrotum.

Mikilvægt að kortleggja ójöfnuð

Í skýrslunni kemur fram að gagnasöfnun um hagi barna geri börnin sýnileg – sem aftur leiði til þess að hægt sé að bregðast við þörfum þeirra og bæta réttindastöðu. Framfarir og nýsköpun í gagnaöflun og gagnadreifingu hafi gert mögulegt að aðgreina gögn eftir breytum á borð við búsetu, efnahag, kyni, þjóðerni og fötlun. Þannig er hægt að ná betur utan um hópa sem erfitt er að koma auga á þegar rýnt er í breið meðaltöl. Skýrsla sem þessi varpar því ljósi á ójöfnuð – í þeim tilgangi að berjast af krafti gegn honum.

UNICEF leggur áherslu á að tölfræði ein og sér breyti ekki heiminum. Hún greiði hins vegar fyrir breytingum með því að draga fram hvar skóinn kreppi. Enn fremur geri hún forgangsröðun í þágu þeirra barna sem helst standa höllum fæti mögulega og undirstriki hvaða inngrip séu mikilvæg til að rétta hlut þeirra.

„Tölfræðigögn eru ekki bara tölur. Þau lýsa veruleika barna um allan heim. Þau sýna okkur hvaðan við komum og hvert beri að stefna. Gagnaöflun er gríðarlega mikilvæg fyrir aukna velferð barna,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Stefán leggur áherslu á að með áreiðanlegri gagnaöflun sé hægt að þrýsta á um að réttindi allra barna séu virt.

„Þannig drífur starf UNICEF áfram varanlegar umbætur sem breyta heiminum. Við höfum í nær sjö áratugi verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn og erum í einstakri stöðu til að hafa áhrif á heimsvísu. Það er ekki síst fyrir tilstuðlan viðamikillar gagnaöflunar okkar um allt sem tengist börnum heimshornanna á milli.“

UNICEF hefur í tæp 35 ár gefið út skýrslur um stöðu barna á heimsvísu. Skýrsluna í ár, State of the World´s Children 2014 in numbers, má nálgast hér.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn