22. maí 2012

Snillingar frá Dalvíkurskóla safna fyrir UNICEF

Í síðustu viku var haldin UNICEF-hreyfing í Dalvíkurskóla. Nokkrir nemendur létu sér ekki nægja að hlaupa og safna áheitum til styrktar UNICEF heldur slógu upp tombólu líka! Þau Þormar Ernir, Alexandra Ýr og Elvar Freyr söfnuðu 6.045 krónum. Elvar Freyr hélt aðra tombólu með þeim Bríeti Rut og Lovísu Leu og söfnuðu þau alls 3.064 krónum.

Í síðustu viku var haldin UNICEF-hreyfing í Dalvíkurskóla. Nokkrir nemendur létu sér ekki nægja að hlaupa og safna áheitum til styrktar UNICEF heldur slógu upp tombólu líka! Þau Þormar Ernir Guðmundsson, Alexandra Ýr Viktorsdóttir og Elvar Freyr Jónsson söfnuðu 6.045 krónum. Elvar Freyr hélt aðra tombólu með þeim Bríeti Rut Þórðardóttur og Lovísu Leu Jóhannsdóttur og söfnuðu þau alls 3.064 krónum. Þessir snillingar eru allir í 2. bekk í Dalvíkurskóla.

ÞÚSUND ÞAKKIR KRAKKAR!

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn