20. nóvember 2013

Söfnuðu yfir 660 þúsund krónum á góðgerðaviðburði

Í gær mættu Filippseyingar búsettir á Íslandi á skrifstofu UNICEF og afhentu formlega ágóða hádegisviðburðar sem þeir stóðu fyrir sunnudaginn 17. nóvember síðastliðinn.

Ótal miðar voru seldir á hádegishlaðborðið sem fram fór á veitingastaðnum Bambus í Borgartúni. Þar söfnuðust hvorki meira né minna en 664.370 krónur!  Þar af komu 575.500 krónur inn í miðasölu og að auki lágu söfnunarbaukar frammi sem höfðu að geyma 88.870 krónur þegar talið var upp úr þeim við afhendingu framlagsins í gær.

Kraftur og dugnaður

„Við eigum varla orð yfir dugnað og kraft skipuleggjenda og allra þeirra sem komu að þessum flotta viðburði. Þau unnu sleitulaust dögum saman til að þetta mætti verða að veruleika. Við erum þeim innilega þakklát fyrir framlag þeirra til neyðarsöfnunar UNICEF fyrir börn á Filippseyjum,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Að auki efndi einn skipuleggjenda viðburðarins til söfnunar meðal samstarfsfólks síns hjá Iceland Travel. Alls styrkti starfsfólk Iceland Travel söfnunina um 67.686 krónur og í kjölfarið ákváðu yfirmenn fyrirtækisins að leggja jafnháa upphæð til neyðarsöfnunarinnar. Samtals renna því 135.372 krónur til söfnunarinnar frá starfsfólki og eigendum Iceland Travel.

„Varla er hægt að ímynda sér hversu erfitt er að vera fjarri heimahögunum þegar hamfarir eins og þessar bresta á,“ sagði Stefán Ingi, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

„Varla er hægt að ímynda sér hversu erfitt er að vera fjarri heimahögunum þegar hamfarir eins og þessar bresta á. Margir Filippseyingar sem búsettir eru hér hafa ekki heyrt frá ástvinum sínum og ættingjum eftir fellibylinn. Það er hræðilegt. Við hjá UNICEF höfum lagt okkur fram um að miðla upplýsingum til þeirra um neyðaraðgerðir okkar á svæðinu og hvernig framlag þeirra kemur að gríðarlega góðum notum við hjálparstarfið,“ segir Stefán.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn