30. mars 2007

Sögusagnir um að 66 börn hafi verið myrt í Úganda

Sögusagnir eru um að 66 börn hafi verið myrt í Úganda í tengslum við afvopnun í norðurhluta Kotido svæðis. UNICEF og samstarfsaðilar (þ.á.m. Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna) eru í nánu sambandi við yfirvöld í Úganda og Kotido svæðis vegna þessa og hvetur til að atburðurinn verði rannsakaður af sjálfstæðum aðilum.

Sögusagnir eru um að 66 börn hafi verið myrt í Úganda í tengslum við afvopnun í norðurhluta Kotido svæðis. UNICEF og samstarfsaðilar (þ.á.m. Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna) eru í nánu sambandi við yfirvöld í Úganda og Kotido svæðis vegna þessa og hvetur til að atburðurinn verði rannsakaður af sjálfstæðum aðilum.

UNICEF álítur að atburðurinn gæti tengst stígvaxandi ofbeldi í norðurhluta Kotido héraðs vegna afvopnunar og lýsir yfir áhyggjum yfir ástandinu þar. Öryggi fjölskyldna, sér í lagi kvenna og barna, er ógnað. UNICEF hvetur yfirvöld til þess að grípa til allra nauðsynlegra aðgerða til að tryggja vernd þeirra sem minnst mega sín í samfélaginu.

UNICEF minnir á orð fulltrúa hjálparstarfs Sameinuðu þjóðunum frá nóvember 2006 um að allir vopnaðir hópar í landinu skulu hafa hægt um sig á meðan á afvopnun stendur til að hægt sé að vernda saklausa borgara og forðast aukið ofbeldi.

Vernd borgara er ekki bara skylda yfirvalda í Úganda samkvæmt alþjóðlegum mannréttindasáttmálum og þjóðarstefnu þeirra, heldur einnig á ábyrgð hvers og eins á Karamoja-undirhéraðinu.

UNICEF í Úganda vekur athygli á því að ef börn búa við ofbeldi í samfélaginu hefur það bæði áhrif á þau til skamms tíma og langtíma. Ógnun við líkamsmeiðingar og jafnvel dauða er mikil fyrir einstaklinginn, en einnig tekur það sinn toll af samfélaginu. Ofbeldi heldur börnum frá skóla og rænir þau barnæskunni og tækifærum til að njóta sín til fulls. Langvarandi og mikið ofbeldi heftir samfélög og möguleika þeirra til að þróast með jákvæðum hætti.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn