23. október 2019 Þessar þrjár ungu stúlkur, Dýrleif (11), Yrja Gló (11) og Urður (12) komu á skrifstofu UNICEF á Íslandi í morgun með heldur betur góða gjöf. 7.800 krónur sem þær stöllur höfðu safnað með því að ganga í hús í hverfinu sínu og selja amerískar súkkulaðibitakökur.
Góðhjörtuðu athafnakonurnar bökuðu kökurnar sjálfar, settu þær í poka sem þær höfðu útbúið með innihaldslýsingu og öllu tilheyrandi. Sannarlega glæsilegt framtak hjá þessum snillingum.
Söfnunarféð vildu stúlkurnar endilega láta renna í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í norðausturhluta Sýrlands.
Og vinkonunum þótti ekki síður fróðlegt að fá þær upplýsingar hjá starfsfólki UNICEF á Íslandi að fyrir þessa söfnunarfjárhæð, 7.800 krónur, mætti bólusetja 312 börn gegn mænusótt eða gefa 156 vannærðum börnum jarðhnetumauksmáltíð.
UNICEF á Íslandi þakkar Dýrleif, Yrju Gló og Urði kærlega fyrir stuðninginn.

