17. janúar 2020

Spiluðu jólalög fyrir Skagamenn og söfnuðu fyrir 165 hlýjum teppum

Félagarnir Gunnar Ágúst Ásgeirsson og Bjarki Þór Aðalsteinsson mættu á skrifstofu UNICEF á Íslandi í dag með afrakstur söfnunarátaks þeirra í síðasta mánuði.

17. janúar 2020 Félagarnir Gunnar Ágúst Ásgeirsson og Bjarki Þór Aðalsteinsson mættu á skrifstofu UNICEF á Íslandi í dag með afrakstur söfnunarátaks þeirra í síðasta mánuði. Gunnar Ágúst, Bjarki Þór og Ólafur Dór Baldursson fóru þá um Akraneskaupstað og léku jólalög um allar trissur við góðar undirtektir. Loks héldu þeir jólatónleika á Gamla Kaupfélaginu þar í bæ þann 28. desember þar sem þeir nutu meðal annars liðsinnis söngkonunnar Brynju Valdimarsdóttur. Í öllu þessu tónleikahaldi höfðu þeir meðferðis söfnunarkassa frá UNICEF á Íslandi og tóku við framlögum frá gestum og gangandi. Þá var hægt að styðja söfnunina með því að senda sms-skilaboð eða millifæra.

Tilefnið var að safna fyrir hlýjum teppum í Sönnum gjöfum handa börnum í neyð.

Gunnar og Bjarki afhentu sem fyrr segir kassann í dag og þegar talið hafði verið upp úr honum kom í ljós að safnast höfðu 142.401 króna, eða nóg til að festa kaup á 165 hlýjum teppum. Svo sannarlega glæsilegt framtak hjá tónlistarmönnunum frá Akranesi og færir UNICEF á Íslandi þeim félögum, samstarfsaðilum og öllum þeim sem styrktu söfnun þeirra kærar þakkir fyrir. UNICEF sér um að senda teppin þangað sem þörfin er mest en þau eru meðal annars send í flóttamannabúðir þar sem mörg börn búa í köldum tjöldum yfir veturinn.

Takk fyrir stuðninginn!

Fleiri
fréttir

20. júní 2025

UNICEF: Sláandi aukning í fjölda vannærðra barna á Gaza
Lesa meira

16. júní 2025

UNICEF fordæmir dráp á börnum í hættulegri stigmögnun í Mið-Austurlöndum
Lesa meira

12. júní 2025

Hver mun standa með börnum þegar heimsbyggðin bregst?
Lesa meira
Fara í fréttasafn