02. desember 2019

Sprenging í sölu Sannra gjafa tákn um breytta tíma

Íslendingar eru að taka Sönnum gjöfum UNICEF á Íslandi opnum örmum fyrir þessi jól og var sett nýtt sölumet á Svörtum föstudegi. Jókst salan um tæp 70 prósent frá síðasta ári. Það sem gerir þetta enn merkilegra er að enginn sérstakur afsláttur var veittur af gjöfunum

2. desember 2019 Íslendingar eru að taka Sönnum gjöfum UNICEF á Íslandi opnum örmum fyrir þessi jól og var sett nýtt sölumet á Svörtum föstudegi. Jókst salan um tæp 70 prósent frá síðasta ári. Það sem gerir þetta enn merkilegra er að enginn sérstakur afsláttur var veittur af gjöfunum og var verð meira að segja hækkað í tilefni dagsins af þeirri einföldu ástæðu að UNICEF gefur engan afslátt af því að bjarga lífi barna. Þetta framtak hreyfði greinilega við Íslendingum á þessum mikla kaupdegi.

Þessa aukningu segja verkefnastjórar fjáröflunar UNICEF á Íslandi meðal annars til marks um breytta tíma, aukna umhverfisvitund landsmanna og baráttu gegn sóun. Þá spilli auðvitað ekki fyrir að gott er að láta gott af sér leiða í aðdraganda jólanna.

Með Sönnum gjöfum UNICEF kaupir fólk lífsnauðsynleg hjálpargögn fyrir bágstödd börn sem UNICEF dreifir síðan til barna og fjölskyldna þeirra þar sem þörfin er mest. Sannar gjafir eru keyptar í nafni þess sem kaupandann langar að gleðja og fær viðkomandi gjafabréf með ljósmynd, lýsingu á gjöfinni og persónulegri kveðju frá kaupandanum. Sannar gjafir eru því umhverfisvæn og umbúðalaus gjöf sem gefa má með hreina samvisku.

Nú þegar eru ótal Sannar gjafir í boði fyrir öll tilefni á vefnum okkar Sannargjafir.is en því til viðbótar erum við nú að kynna mikið úrval nýrra og umhverfisvænna gjafa fyrir jólin 2019.

Meðal annars:

  • Umhverfisvæn fjölnota dömubindi
  • Jólahjól
  • Klósett
  • Sólarorkulampa
  • Stúlknastyrkur
  • Ömmugjöfin
  • Afagjöfin
  • Krakkapakkinn

Allar nánari upplýsingar um Sannar gjafir UNICEF má finna á vefnum okkar, Sannargjafir.is

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn