15. ágúst 2006

Sprengingar í Sri Lanka

Sprengingarnar síðastliðinn mánudag í Mullaitivu svæði, sem urðu fjölda stúlkna að bana og særðu enn fleiri, er afleiðing vaxandi ofbeldis á Sri Lanka. „Þessi börn eru saklaus fórnarlömb ofbeldis,“ sagði Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF í dag.

Sprengingarnar síðastliðinn mánudag í Mullaitivu svæði, sem urðu fjölda stúlkna að bana og særðu enn fleiri, er afleiðing vaxandi ofbeldis á Sri Lanka. „Þessi börn eru saklaus fórnarlömb ofbeldis,“ sagði Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF í dag. „Við hvetjum alla deiluaðila til að virða alþjóðlega mannréttindasáttmála og vernda börn frá skaða, sem og halda sig frá þeim stöðum sem þau eru líkleg til að læra og leika sér á.“

Sprengingin í Mullaitivu í norðurhluta landsins varð 40 manns að bana. Um 100 börn liggja særð og þar af mörg lífshættulega. Stúlkur frá skólum á nærliggjandi svæði við Mullaitivu og Kilinochchi gistu eina nótt í húsaþyrpingunni sem sprengd var þar sem þær voru að sækja námskeið í skyndihjálp.
Starfsfólk á skrifstofu UNICEF fór strax á svæðið til að meta aðstæður og veita bensín og sjúkragögn fyrir spítalann. UNICEF veitir einnig sálræna aðstoð fyrir særða nemendur og fjölskyldur fórnarlambanna.

Þessi sprenging tengist vaxandi ofbeldi og átökum á Sri Lanka síðustu vikur, en tíu þúsundir barna hafa þurft að flýja heimili sín vegna þeirra. Hundruð þúsunda barna liggja særð, hafa misst fjölskyldumeðlim og búa við stöðugan ótta vegna ofbeldis og árása á samfélög þeirra.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn