20. desember 2019

Stefnir í metsölu Sannra gjafa UNICEF

Allir sem keypt hafa Sanna gjöf hjá UNICEF hafa upplifað þessa einstöku tilfinningu sem því fylgir. Það eru einhverjir töfrar sem tengjast því að láta gott af sér leiða. UNICEF á Íslandi er því svo sannarlega heiður að greina frá því að nú stefnir allt í metár í sölu Sannra gjafa fyrir jólin.

20. desember 2019 Allir sem keypt hafa Sanna gjöf hjá UNICEF hafa upplifað þessa einstöku tilfinningu sem því fylgir. Það eru einhverjir töfrar sem tengjast því að láta gott af sér leiða. UNICEF á Íslandi er því svo sannarlega heiður að greina frá því að nú stefnir allt í metár í sölu Sannra gjafa fyrir jólin.

Íslendingar hafa í gegnum árin tekið Sönnum gjöfum opnum örmum og hafa vinsældir þeirra við hin ýmsu tækifæri farið stigvaxandi. Í ár hefur orðið sannkölluð sprenging í sölu og er það líklega til marks um breytta tíma, aukna umhverfisvitund landsmanna og baráttu gegn sóun af ýmsu tagi. Og svo spillir auðvitað ekki fyrir að láta gott af sér leiða og fá í kaupbæti þessa töfrandi tilfinningu sem því fylgir.

Nú þegar styttist í jólin þá gefum við enn í og munum afgreiða pantanir af alúð og atorku þangað til.

Sjálfsafgreiðsla með greiðslukortum inni á vefnum www.sannargjafir.is er opin alla daga yfir hátíðirnar og allan sólarhringinn.

Ef óskað er eftir að sækja tilbúin gjafabréf eða aðstoð við útprentun er skrifstofan opin eins og segir hér að neðan.

Við vekjum athygli á því að við aðstoðum fólk eftir fremsta megni í gegnum tölvupóst utan hefðbundins skrifstofutíma. Sendu póst á unicef@unicef.is ef þig vantar aðstoð.

Sannar gjafir UNICEF verða til afgreiðslu á skrifstofu UNICEF á eftirfarandi tímum yfir hátíðirnar:

21. desember, laugardagur: 11:00-16:00
22. desember, sunnudagur: 11:00-16:00
23. desember, Þorláksmessa: 09:00-17:00
24. desember, Aðfangadagur: lokað
25. desember, Jóladag: lokað
26. desember, Annar í jólum: lokað
27. desember, föstudagur 09:00-17:00
30. desember, mánudagur 09:00-17:00
31. desember, Gamlársdagur: lokað
01. janúar, Nýársdagur: lokað

Opnum aftur á hefðbundnum skrifstofutíma 2. janúar 2020 – sjáumst hress og kát á nýju ári.

Takk fyrir að kaupa Sannar gjafir og hjálpa þannig börnum í neyð.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn