Eins og flestir vita standa strákarnir okkar í landsliði karla í fótbolta í ströngu. Í undirbúningnum fyrir mótið tóku þeir sér þó tíma dýrmætan tíma til að leggja málstað UNICEF lið.
Þeir Gylfi Þór Sigurðsson, Kolbeinn Sigþórsson, Hannes Þór Halldórsson og Jóhann Berg Guðmundsson vippuðu sér í UNICEF-treyjur fyrir landsliðsæfingu og sögðu nokkur vel valin orð í myndavél. Fyrstu myndböndin eru þegar farin að birtast á Facebook-síðunni okkar.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem karlalandsliðið í fótbolta leggur UNICEF lið. Þeir hafa áður stutt við neyðaraðgerðir UNICEF og hafa veitt ómetanlega hjálp.
Viltu vera með í baráttuliði fyrir réttindum barna?



