18. desember 2019

Styrktu UNICEF á Íslandi með því að svara spurningakönnunum

EMC Rannsóknir færði UNICEF á Íslandi góðan styrk í dag sem þakka má þátttakendum í spurningakönnunum fyrirtækisins á árinu.

18. desember 2019 EMC Rannsóknir færði UNICEF á Íslandi góðan styrk í dag sem þakka má þátttakendum í spurningakönnunum fyrirtækisins á árinu. Þeir láta nefnilega gott af sér leiða með þátttökunni því við hvert svar einstaklings í könnun EMC Rannsókna heitir fyrirtækið að láta 10 krónur renna til góðs málefnis.

Eftir 10 þúsund svör höfðu safnast 100 þúsund krónur sem fyrirtækið lét renna til UNICEF á Íslandi og mun styrkurinn að sjálfsögðu nýtast börnum í neyð um allan heim vel. Takk fyrir okkur, EMC Rannsóknir og allir sem svöruðu spurningakönnunum þeirra á árinu.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn