UNICEF á Íslandi hefur fengið ábendingu um að svikatölvupóstur, sem virðist vera frá alþjóðlegum starfsmanni UNICEF, hafi borist hérlendum aðilum. Meintur sendandi tölvupóstsins, Tommy Gold, segist stýra verkefni innan Evrópusambandsins vegna skyndilegra fuglaflensutilfella „innan vissra hluta Evrópusambandsins“. Lofar hann gulli og grænum skógum ef viðtakandi póstsins tekur að sér að stofna bankareikning í Bandaríkjunum og gerast milligöngumaður um móttöku og innlausn fjármunana, en sjálfur segist hann ekki koma því við vegna mikilla anna.