6. desember 2019 Crossfit- og þrekraunakappinn Einar Hansberg Árnason syndir nú samfleytt í tvo sólarhringa í Varmárlaug í Mosfellsbæ til að vekja athygli á ofbeldi gegn börnum og átaki UNICEF á Íslandi Stöðvum feluleikinn.
Það var klukkan 17:00 í gær, 5. desember, sem Einar stakk sér til sunds og hóf 48 klukkustunda ferðalag sitt í lauginni litlu. Vill hann með þessari þrekraun endurvekja athygli á átaki UNICEF á Íslandi gegn ofbeldi á börnum.
Í sumar fór Einar hringferð um landið gegn ofbeldi gegn börnum tengt sama átaki UNICEF á Íslandi þar sem hann réri, skíðaði eða hjólaði 13 þúsund metra á 36 stöðum, einn kílómetra fyrir hvert barn sem verður fyrir ofbeldi á Íslandi. Lagði hann alls 500 kílómetra í þeirri hringferð. UNICEF á Íslandi hefur safnað nærri 12 þúsund undirskriftum í átakinu Stöðvum feluleikinn. Það fer ekki á milli mála að hann brennur fyrir þetta málefni og erum við honum ótrúlega þakkláta fyrir að vekja athygli á því.
Einar fór aftur af stað nú fyrir litla frænsku sína sem lenti í alvarlegu einelti í skóla í haust. Varð ástandið svo slæmt að hún neyddist til að flytja sig um skóla. Ofbeldi á sér nefnilega margar birtingarmyndir og allar eru þær ljótar.
Við hvetjum alla til að styðja Einar í lauginni með því að skrifa undir Stöðvum feluleikinn hér.
Þá er hægt að fylgjast með gangi mála hjá Einari með því að finna hann á Instagram undir notandanafninu: ehansberg
Einar og teymið hans vilja einnig benda fólki á að allir eru velkomnir að slást í för með honum í Varmárlaug. ÁFRAM EINAR!


