09. apríl 2018

„Það er góð tilfinning að geta haft áhrif eftir minn dag.“

„Líf annarra heldur áfram þó að mitt þverri og það er góð tilfinning að geta haft áhrif, jafnvel löngu eftir minn dag. Ég þekki vel starf samtakanna og treysti þeim fullkomlega til að nýta peningagjöfina skynsamlega til að hjálpa börnum sem þurfa á því að halda.”

„Líf annarra heldur áfram þó að mitt þverri og það er góð tilfinning að geta haft áhrif, jafnvel löngu eftir minn dag. Ég þekki vel starf samtakanna og treysti þeim til að nýta peningagjöfina skynsamlega til að hjálpa börnum sem þurfa á því að halda,” segir Guðrún Ögmundsdóttir.

Aðspurð hvers vegna hún ætli að gefa erfðagjöf segist Guðrún líta á það sem tækifæri til að halda áfram leggja sitt af mörkum fyrir velferð barna eftir að hún fellur frá. “Það er svo mikilvægt að standa vörð um börn heimsins. Öll börn eru okkar börn og við berum ábyrgð,“ segir Guðrún.

Guðrún Ögmundsdóttir var á meðal fyrstu heimsforeldra UNICEF og hefur því styrkt starfið mánaðarlega í meira en tíu ár. Hún hefur einnig setið í stjórn UNICEF frá árinu 2011 í sjálfboðastarfi og gegnt þar formennsku. Guðrún hefur tekið ákvörðun um að gefa erfðagjöf til UNICEF og hvetur aðra til að íhuga möguleikann.

„Ég hef alla tíð brunnið fyrir málefnum barna heimsins, og ég hef líka horft upp á fátæktina og hörmungarnar í ferðum bæði til Sambíu og Malaví á vegum UNDP [United Nations Development Programme] þegar ég var þingmaður. Í þeim ferðum kynnti ég mér aðstæður barna og kvenna,“ segir Guðrún.

.

Hún undirstrikar að erfðagjafir séu af öllum stærðum og að háar sem lágar upphæðir skipti máli. „Það er bara þannig að þetta þurfa ekki alltaf að vera stórar upphæðir. Það geta ekki allir gefið háar upphæðir. Það er ekki verið að tala um að gefa íbúðir eða slíkt, heldur bara hluta af arfi, ákveðna upphæð eða prósentu sem er tekin frá fyrir börn heimsins, til að koma þeim til mennta og forða þeim frá hungri.“

„Ég er svo meðvituð um það, hvað framlög til fátækra barna heimsins gagnast vel. Það þarf svo lítið að leggja af mörkum til að breyta stóru, ég tala nú ekki um á íslenskan mælikvarða.“

Guðrún segir ferlið að gefa erfðagjöf talsvert einfaldara en hún hafði haldið. „Starfsfólk UNICEF leiðir mann algjörlega í gegnum þetta frá upphafi til enda og manni býðst ókeypis lögfræðiþjónusta til að gera erfðaskránna. Þannig að þetta er mjög einfalt, maður mætir bara til lögfræðingsins og gengur frá þessu.“

„Ef einhver er að velta fyrir sér þessum möguleika að gefa erfðagjöf til UNICEF, þá hvet ég hann til að láta verða af því. UNICEF getur notað hana til að gera kraftaverk og svo gefur hún manni sjálfum líka svo mikið.“

Ef þú vilt gefa erfðagjöf eða hefur einhverjar spurningar um erfðagjafir hvetjum við þig til að hafa samband við Esther Hallsdóttur, umsjónaraðila erfðagjafa, í síma 562-6262 eða með því að senda tölvupóst á netfangið esther@unicef.is. Einnig er hægt að lesa meira um erfðagjafir á www.unicef.is/erfdagjafir.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn