10. ágúst 2016

Það skiptir máli hvaðan gott kaffi kemur!

UNICEF og Te & Kaffi hafa frá árinu 2008 boðið fyrirtækjum að kaupa hágæða kaffi til stuðnings baráttunni fyrir réttindum barna um allan heim. Fjölmörg brýn verkefni hafa notið góðs af samstarfinu.

UNICEF og Te & Kaffi hafa frá árinu 2008 boðið fyrirtækjum að kaupa hágæða kaffi til stuðnings baráttunni fyrir réttindum barna um allan heim. Fjölmörg brýn verkefni hafa notið góðs af samstarfinu. Frábær viðbrögð fyrirtækja hafa meðal annars gert UNICEF kleift að bregðast strax við eftir jarðskjálftana í Nepal, útvega börnum og fjölskyldum þeirra á flóðasvæðum í Pakistan drykkjarhæft vatn, og veita börnum á flótta undan stríðsátökum í Sýrlandi neyðaraðstoð.

Í ár bjóðum við uppá Colombia Sandalj-kaffi sem ræktað er í Cauca-héraðinu í Suður- Kólumbíu. Samstarfið við Te & Kaffi gerir okkur auk þess kleift að styðja ekki einungis eitt heldur tvö mikilvæg verkefni í framleiðslulandinu – atvinnusköpun og valdeflingu kvenna og menntun barna í Cauca-héraðinu. Colombia Sandalj-kaffið er ræktað í 1.850 m yfir sjávarmáli, handtínt og sólþurrkað af konunum sem eiga og reka búgarðinn. Þær koma alls staðar að úr Cauca-héraðinu og eru á öllum aldri. Sú yngsta 20 ára og sú elsta að nálgast áttræðisaldurinn. Þær eiga það sameiginlegt að berjast fyrir jafnrétti og hafa ástríðu á kaffi.

Kaffið er framleitt á samfélagslega ábyrgan hátt, styður uppgang kvenna í bændasamfélaginu og eflir konur sem fyrirvinnur heimilisins. Að auki fær UNICEF rausnarlegan hluta af söluverðinu sem fer í að styðja við menntun barna sem tilheyra frumbyggjasamfélögum í Cauca, en fátækt og félagsleg einangrun hefur haft mikil áhrif á aðgengi barna að menntun á svæðinu.

Þrátt fyrir að vera millitekjuríki er misskipting auðs í Kólumbíu ein sú mesta í Suður-Ameríku. Mikill ójöfnuður ríkir í landinu og eru minnihlutahópar sem tilheyra frumbyggjasamfélögum þar sérstaklega viðkvæmir. Fátækt og félagsleg einangrun hafa þar mikil áhrif á börn. UNICEF leggur áherslu á að öll börn hafi jafnan aðgang að menntun. UNICEF vill með þessu verkefni tryggja bætt aðgengi barna sem tilheyra frumbyggjasamfélögum að menntun, enda er menntun lykillinn að betri framtíð!

Kaffið frá Te & Kaffi er einungis fáanlegt í gegnum UNICEF og því tilvalið tækifæri til að dekra við vinnustaðinn og styðja um leið við mikilvæg málefni er varða konur og börn í Cauca héraðinu, þar sem kaffið er framleitt.

Te & Kaffi ber allan kostnað af framleiðslu og sölu kaffisins og 45% af söluverðinu rennur til UNICEF.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn