Þegar móðir snýr aftur til vinnu
Mary Beth Ferrante, móðir, ráðgjafi og starfsráðgjafi, deilir ráðum fyrir nýjar mæður sem hyggjast snúa aftur til vinnu.
Það er ekkert leyndarmál að það getur verið yfirþyrmandi að snúa aftur til vinnu eftir fæðingu barns. Þú ert ekki bara að kljást við samviskubit yfir því að skilja barnið þitt eftir til að snúa aftur í amstur hversdagsins, heldur sækja líka á þig hugsanir um það hvort að þú ráðir við að aðlagast lífinu á skrifstofunni á nýjan leik.
Mun ég ennþá kunna að vinna vinnuna mína?
Fann fyrirtækið staðgengil sem stóð sig betur en ég á meðan ég var í orlofi?
Hvernig get ég verið bæði góð móðir og góður starfskraftur?
Frá móður sem hefur verið þarna: Þetta verður allt í lagi. Já, auðvitað tekur það tíma að komast aftur í rétta taktinn, en það er vel hægt að aðlaga nýja vinnulífinu að nýjum skyldum þínum sem móðir. Hér eru nokkrar leiðir til þess að auðvelda þér örlítið að snúa aftur til vinnu eftir barnsburð.
Vertu í samskiptum við yfirmanninn þinn áður en þú snýrð aftur
Þú gafst líklega upp áætlaða dagsetningu fyrir endurkomu áður en þú fórst í leyfi. Hafðu samband við yfirmann þinn þegar sú dagsetning nálgast og tryggðu að hann sé viðbúinn. Gangtu úr skugga um að þið séuð á sömu blaðsíðu hvað varðar dagsetninguna sem þú hyggst snúa aftur svo að þið hafið bæði tækifæri til að ganga frá þeim verkefnum sem þið þurfið til þess að endurkoma þín gangi eins smurt og mögulegt er.
Láttu vita hvað þú þarft
Með ungabarni koma nýjar þarfir varðandi vinnutíma. Þú varst kannski alltaf starfsmaðurinn sem hægt var að treysta á að gæti verið lengur eftir vinnu eða klárað verkefni yfir helgi, svo það er mikilvægt að draga skýr mörk þegar þú mætir aftur til vinnu.
Spurðu sjálfa þig hvað hefur breyst fyrir þig. Þarftu að vera komin út á ákveðnum tíma til þess að sækja barnið? Viltu taka frá tíma seinnipartinn þar sem ekki er hægt að ná í þig svo þú getir einbeitt þér að því að eyða tíma með barninu? Þarftu lengri fyrirvara til þess að geta mætt á viðburði eða ferðast vegna vinnu? Því opnari og beinskeittari sem þú ert um þessar breytingar, því meiri virðingu mun fólk bera fyrir þínum mörkum.
Finndu umönnunaraðila sem þú treystir
Þegar kemur að því að finna einhvern til að hugsa um barnið þitt á meðan þú ert í vinnu er mikilvægt að þér líði vel með ákvörðunina. Ef þú hefur áhyggjur af velferð barsins er engin leið fyrir þig til að halda athygli í vinnunni.
Passaðu að þú sért örugg með það að barnið þitt njóti öryggis, væntumþykju og umönnunar. Taktu þér tíma í að kanna kostina, skoða mismunandi aðila, taka viðtöl við barnfóstrur og ræða við aðra foreldra.
Ef möguleikinn er fyrir hendi skaltu taka viku á rólega aðlögun (gagnlegt fyrir bæði þig og barnið!) áður en þú snýrð aftur í fulla vinnu og byrjaðu á aðlögun á meðan þú ert enn í orlofi. Skutlaðu barninu til ömmu hálfan dag, farðu með því á leikskóla eða dagmömmu einn dag eða fáðu barnfóstru til að byrja einni til tveimur vikum áður en þú snýrð aftur til vinnu. Það auðveldar þér breytinguna að finnast þú vera vel undirbúin.
„það er mikilvægt að vera góð við sjálfa þig og muna að þú ert að vera það sem þú getur með það sem þú hefur hverri stundu.“
Búðu þér til plan ef þú hyggst halda brjóstagjöf áfram
Spurðu hvaða vinnandi móður sem er og hún mun líklega segja þér að það að mjólka sig í vinnunni sé í raun önnur vinna. Það er enn einn hluturinn sem þú þarft að undirbúa og vinna í kring um í gegn um vinnudaginn. Áður en þú snýrð aftur til vinnu skaltu vera viss um að þú þekkir pumpuna og að þér líði vel með að nota hana. Vertu með lista af öllum pörtum sem þú þarft til þess að mjólka í vinnunni tilbúinn og íhugaðu að kaupa annað sett af aukahlutum í pumpuna. Ef þú átt annað sett er auðveldara að pakka í töskuna kvöldið áður án þess að þurfa alltaf að þrífa eina settið sem þú átt.
Býður vinnuveitandi þinn upp á aðstöðu fyrir mjólkandi mæður? Ef svo er skaltu bóka fund með starfsmannastjóra eða yfirmanni til þess að fá á hreint hvernig aðstaðan virkar. Þarftu lykil? Kemur þú til með að deila aðstöðunni með öðrum mæðrum í sömu stöðu? Þarf að bóka rýmið? Ef ekki er boðið upp á slíka aðstöðu skaltu láta starfsmannastjóra og yfirmann vita hverju þú þarft á að halda til þess að láta brjóstagjöfina ganga upp, helst um mánuði áður en þú snýrð aftur til vinnu.
Vertu viss um að merkja þig upptekna á vinnuplaninu á þeim tímum sem þú þarft að mjólka. Ef þú ert með barn einungis á brjósti þarftu að mjólka þig að minnsta kosti jafn oft og barnið drekkur á meðan þú ert í burtu. Það er hinsvegar í lagi að mjólka aðeins fyrr eða seinna ef eitthvað kemur upp á í vinnunni. Komdu þér aftur á þá dagskrá sem barnið drekkur á eins fljótt og auðið er og forðastu að sleppa úr mjólkun reglulega.
Margar mæður upplifa dýfu í mjólkurframleiðslu sinni þegar þær snúa aftur til vinnu. Passaðu þig að drekka nóg vatn ef þetta kemur fyrir þig. Þegar þú ert með athygli við vinnuna er mikilvægt að muna að drekka nóg af vatni og nærast nægilega til þess að halda mjólkurframleiðslu við. Ef þú ert enn í vandræðum skaltu íhuga að hitta brjóstagjafarráðgjafa. Best er að vera í klæðnaði sem vinnur með þér þegar þú þarft að mjólka. Þannig gengur allt smurðar og hraðar.
Mundu: Þetta tímabil líður hjá! Að mjólka sig í vinnunni getur verið yfirþyrmandi og gremjuvaldandi, sérstaklega ef það veldur því að þú missir af mikilvægum hlutum á vinnustaðnum. Taktu þetta einn dag í einu.
Sýndu sjálfri þér þolinmæði
Þetta er kallað „aðlögun“ af ástæðu: Það tekur tíma að venjast! Já, þú kannt að vinna vinnuna þína og þér finnst jafnvel að þú sért búin að ná tökum á foreldrahlutverkinu, en þú hefur aldrei áður sinnt báðu samtímis! Þú gætir brotnað alveg niður fyrsta vinnudaginn, eða jafnvel sex mánuðum seinna.
Það er mikilvægt að vera góð við sjálfa þig og að vita að þú ert að gera þitt besta með það sem þú hefur á hverri stundu. Það er allt í lagi að njóta þess að vera ein í bílnum á leiðinni í vinnuna, nú þegar það er friðsælasti tími dagsins, eða að flýta þér heim beint eftir fund til þess að fara heim að knúsa barnið þitt. Þetta er kannski ekki akkúrat eins og þú sást það fyrir þér, en þú lætur þetta ganga, allt á þínum hraða.
Þegar ég sneri aftur til vinnu sagði eldri vinnufélagi minn mér að þetta yrði auðveldara með tímanum. Í hreinskilni hélt ég þá að hún væri kexrugluð! En það kom á daginn að hún hafði haft rétt fyrir sér. Þetta verður auðveldara: Þú getur verið bæði góð móðir og staðið þig vel í vinnu. Með smá þolinmæði og undirbúningi kemur þú til með að koma þér aftur í rétta taktinn.
Mary Beth Ferrante er móðir, ráðgjafi, starfsráðgjafi og talsmaður sem berst fyrir vinnandi foreldrum af þúsaldarkynslóðinni. Sem stofnandi Live.Work.Lead. vinnur hún í samstarfi við samtök til að halda í hæfileikar konur á vinnumarkaði með þjálfun og menntun fyrir vinnustaði til þess að styðja betur við vinnandi foreldra. Hún skrifar einnig fyrir Forbes Women.

