16. október 2019

Þetta eru fjölskyldurnar sem flýja árás Tyrkja

Áætlað er að allt að 160 þúsund manns, þar af 70 þúsund börn, hafi neyðst til að flýja heimili sín eftir að innrás Tyrkja í norðausturhluta Sýrlands hófst í síðustu viku. UNICEF telur þessa tölu jafnvel hóflega áætlaða. Flestir flýðu bæina Tell Abiad og Ras Al Ain og eru dæmi þess að fjölskyldur hafi mátt flýja oftar en einu sinni í leit að öryggi. Margir enda í sameiginlegum skýlum.

16. október 2019 Áætlað er að allt að 160 þúsund manns, þar af 70 þúsund börn, hafi neyðst til að flýja heimili sín eftir að innrás Tyrkja í norðausturhluta Sýrlands hófst í síðustu viku. UNICEF telur þessa tölu jafnvel hóflega áætlaða. Flestir flýðu bæina Tell Abiad og Ras Al Ain og eru dæmi þess að fjölskyldur hafi mátt flýja oftar en einu sinni í leit að öryggi. Margir enda í sameiginlegum skýlum.

Þúsundir fjölskyldna, tugþúsundir barna, eru saklaus fórnarlömb í þessum átökum. Að baki þessum tölum um fjölda fólks á flótta og óhugnanlegu tölfræði yfir fjölda látinna eru þó einstaklingar. Það má aldrei gleymast að þetta eru manneskjur og hvert barn sem svipt er réttindum sínum og tækifærum er einu of mikið. Hvert dauðsfall er einu of mikið.

UNICEF á Íslandi tók saman sögur valinna fjölskyldna sem orðið hafa á vegi starfsmanna UNICEF á svæðinu.

Á myndinni hér fyrir ofan er Abbas-fjölskyldan. Þau flúðu frá Ras Al Ain til Hasakah-borgar þar sem þau leita nú skjóls í skólastofu. Margir skólar hafa verið nýttir í neyðarmóttöku og til að hýsa fjölskyldur á flótta. Þar sem nú ættu að vera tugþúsundir barna í skólum víðs vegar um átakasvæðin eru nú fjölskyldur, börn, mæður og feður sem leita skjóls fyrir sprengjuregni.

Abbas-fjölskyldan hafði aðeins með sér því sem nemur tæpum 1.900 krónum ($15) í reiðufé og fötin sem þau eru í. Þau áttu ekki bifreið eins og einhverjir svo þau flúðu fótgangandi. Þau hafa áhyggjur af vatnsskorti sem er vandamál í borginni. Þau skortir hreinlætisvörur og lyf fyrir börnin.

Á myndinni hér fyrir ofan er Zozo-fjölskyldan. Hér leita fjölskyldumeðlimir skugga við yfirgefinn vörubíl nærri þorpinu Tal Tamr. Zozo-fjölskyldan flúði átökin í heimabæ sínum Tell Abiad þegar innrás Tyrkja í norðausturhluta Sýrlands hófst. Þau völdu að koma til þessa þorps því þau höfðu heyrt af vatnsskorti í Hasakah-borg. Þau vona að átökunum ljúki senn svo þau geti snúið aftur heim.

Þú getur lagt starfi UNICEF í norðausturhluta Sýrlands lið. Stuðningur þinn skiptir máli og hefur áhrif.

Sendu sms-ið STOPP í númerið 1900 (1.900 kr.)

Hægt er að leggja frjáls framlög inn á 701-26-102040 og kt. 481203-2950

Nánari upplýsingar um hvernig þú getur hjálpað börnum í Sýrlandi hér.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn