07. mars 2017

Þingmenn gerast talsmenn barna á Alþingi

Þverpólitískur hópur þingmanna undirritaði í dag yfirlýsingu um að gerast talsmenn barna á Alþingi. Hópinn skipa þingmenn úr öllum flokkum sem hafa setið námskeið á vegum UNICEF á Íslandi, Barnaheilla – Save the Children á Íslandi og umboðsmanns barna um Barnasáttmálann og hvernig nota má hann sem hagnýtt verkfæri við ákvarðanatöku og stefnumótun.

7. mars 2017

Þverpólitískur hópur þingmanna undirritaði í dag yfirlýsingu um að gerast talsmenn barna á Alþingi. Hópinn skipa þingmenn úr öllum flokkum sem hafa setið námskeið á vegum UNICEF á Íslandi, Barnaheilla – Save the Children á Íslandi og umboðsmanns barna um Barnasáttmálann og hvernig nota má hann sem hagnýtt verkfæri við ákvarðanatöku og stefnumótun. Fulltrúar ungmennaráða ofangreindra sáu um fræðsluna.

Talsmenn barna eru Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna; Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata; Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins; Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins; Nichole Leigh Mosty, þingmaður Bjartrar framtíðar; Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar.

Umboðsmaður barna, Barnaheill og UNICEF á Íslandi standa að talsmönnum barna. Þingflokkarnir útnefna fulltrúa sína, bæði aðalmenn og varamenn.

Verkefninu var fyrst komið á fót árið 2014. Það gaf góða raun og því var ákveðið að endurtaka leikinn á þessu kjörtímabili, þverpólítískt sem fyrr.

Hlutverk talsmanna barna er að hafa Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi í störfum sínum. Eins koma þeir til með að leitast við að tryggja að börn og talsmenn þeirra fái tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við þingmenn áður en teknar eru ákvarðanir sem varða börn með einum eða öðrum hætti. Talsmenn barna leitast við að tileinka sér barnvæn sjónarmið, bera réttindi og hagsmuni barna fyrir brjósti og meta og vekja athygli á áhrifum þeirra ákvarðana sem teknar eru í þinginu á börn dagsins í dag sem og börn framtíðarinnar.

„Við sem að talsmönnum barna á Alþingi standa erum þakklát fyrir það að þverpólítískur vilji viðhaldi verkefninu. Fyrirkomulagið í kringum talsmennina er hugsað til þess að hafa opnar samskiptaleiðir við alla flokka á þingi og reyna eftir fremsta megni að veita fræðslu um réttindi barna og efla réttindavitund. Þetta teljum við mjög mikilvæga leið til að auka vægi réttinda barna á Alþingi Íslendinga,“ segir Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna.

„Við erum meðvituð um að allir þingmenn starfa eftir sinni eigin sannfæringu og að við segjum þeim ekki hvað þeir eiga að gera. Markmiðið er einfaldlega að fá þá til að setja upp „barnaréttindagleraugun“ í sínum störfum í þinginu. Við óskum talsmönnum barna hjartanlega til hamingju með daginn og hlökkum til þeirra verkefna sem framundan eru.“

Brynhildur Kristín Ásgeirsdóttir frá ungmennaráði Barnaheilla, Inga Huld Ármann fulltrúi úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna og Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, formaður ungmennaráðs UNICEF á Íslandi ávörpuðu talsmenn barna í þinginu í dag. Þær ræddu um lögbundinn rétt barna og ungmenna til þátttöku og rétt þeirra til að tjá skoðanir sínar í þeim málum sem þau varða og verið er að taka ákvarðanir um. Sömuleiðis minntu þær á mikilvægi þess að tekið sé réttmætt tillit til skoðana og hagsmuna barna og ungmenna.

„Við erum alltaf til staðar til að veita ykkur innsýn og ráðgjöf og óskum við ykkur velfarnaðar í þessu mikilvæga hlutverki,“ sagði Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir.

Kynnt var í lok athafnarinnar í dag að talsmenn barna munu biðja dómsmálaráðherra um skýrslu um innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og hvernig staðið hafi verið að framkvæmd og eftirfylgd með sáttmálanum hér á landi.

Ég, sem talsmaður barna á Alþingi, heiti því að hafa Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi við störf mín sem þingmaður á Alþingi Íslendinga.

Ég, sem talsmaður barna á Alþingi, mun leitast við að tileinka mér barnvæn sjónarmið og hafa réttindi og hagsmuni barna að leiðarljósi í mínum störfum á þinginu.

Ég mun leitast við að meta og vekja athygli á áhrifum þeirra ákvarðana sem teknar eru á Alþingi á börn dagsins í dag sem og börn framtíðarinnar.

Ég mun leitast við að fræða samflokksmenn mína á þingi um réttindi barna og ólíka snertifleti þeirra við störf þingsins.

Ég mun leitast við að tryggja að börn og talsmenn þeirra fái tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við þingmenn áður en teknar verði ákvarðanir sem varða börn með einum eða öðrum hætti.

Fleiri
fréttir

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira

15. apríl 2024

Ár af stríði í Súdan: Hvergi fleiri börn á flótta í heiminum
Lesa meira

11. apríl 2024

Þrjár ungar stúlkur létu lífið undan ströndum Grikklands
Lesa meira
Fara í fréttasafn