Tæplega 70% stúlkna sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi eru oft eða nær alltaf einmana. Þrisvar til fjórum sinnum líklegra er að drengir sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi finnist framtíð sín vonlaus en þeir sem ekki hafa orðið fyrir slíku ofbeldi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í fimmtán, ítarlegum tillögum sem UNICEF á Íslandi hefur unnið að síðastliðna mánuði um leiðir til að minnka ofbeldi gegn börnum. Tillögurnar má nálgast hér.
Lagt er til að komið verði á fót sérstöku Ofbeldisvarnaráði sem sér um samhæfingu aðgerða og framkvæmd forvarna gegn ofbeldi. Því er ætlað að vinna til frambúðar að forvörnum og er ekki hugsað sem átaksverkefni.
„Nauðsynlegt er að litið sé á ofbeldi sem skýra ógn og barist skipulega gegn því. Við höfum gert þetta með aðra þætti sem við álítum samfélaginu standa ógn af, svo sem áfengi, tóbak og umferðarslys. Dæmin þar sanna að með markvissu forvarnastarfi er hægt að ná gríðarlegum árangri. Af hverju gerum við ekki það sama varðandi ofbeldi?“ spyr Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Í skýrslu UNICEF, Staða barna á Íslandi 2011, var ofbeldi greint sem ein helsta ógn sem steðjar að börnum hér á landi.
Sérfræðihópur barna kom samanÁ meðal annarra tillaga sem UNICEF á Íslandi kynnir í dag eru að starfsemi Barnahúss verði stórefld, framkvæmdar verði reglulegar mælingar á umfangi og eðli ofbeldis gegn börnum og að réttindafræðsla í gegnum menntakerfið verði markvissari, bæði til barnanna sjálfra og þeirra sem vinna með þeim. UNICEF á Íslandi hvetur fólk til að kynna sér tillögurnar í heild sinni á heimasíðunni www.unicef.is.
Við vinnslu þeirra fékk UNICEF til liðs við sig börn og ungmenni sem orðið höfðu fyrir kynferðislegu ofbeldi og mynduðu þau sérstakan sérfræðihóp sem kom með ábendingar og tillögur. Meðal þess sem börnin bentu á var að stuðning skortir fyrir aðstandendur brotaþola, aðra en foreldra. Í sérfræðihópnum hittu þau í fyrsta sinn önnur börn sem deildu sömu reynslu. Þau bentu í kjölfarið á mikilvægi þess að búa til og efla vettvang fyrir hópmeðferð barna sem hafa orðið fyrir ofbeldi.
Mælingar skortir verulegaLjóst er að ekki á sér stað nægileg reglubundin mæling og greining á ofbeldi gegn börnum á Íslandi. Mikið magn upplýsinga er til staðar hjá ýmsum stofnunum en þær eru ekki greindar með skipulögðum hætti. UNICEF undirstrikar að til að mögulegt sé að hafa raunveruleg áhrif í þessum málaflokki þurfi að fylgjast með þróun og áhrifum ofbeldis.
Til að benda á mikilvægi þess að skoða ofbeldi í víðu samhengi fól UNICEF Rannsóknum og greiningu að greina gögn úr spurningalista sem lagður var fyrir börn í 9. og 10. bekk síðastliðið vor. Meðal þess sem þar kemur fram er eftirfarandi:
- 4-5 sinnum líklegra er að drengjum sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi líði oft eða nær alltaf illa í skólanum en drengjum sem ekki hafa orðið fyrir slíku ofbeldi.
- 3-4 sinnum líklegra er að drengir sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi finnist framtíð sín vonlaus.
- Tæplega 70% drengja sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi eru frekar eða mjög sammála þeirri fullyrðingu að stundum eigi ofbeldi rétt á sér, samanborið við tæp 29% á meðal drengja sem ekki hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi.
- 12 sinnum líklegra er að stúlkur sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu fullorðins einstaklings reyki daglega.
- Nær helmingi stúlkna sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi finnst framtíðin vera vonlaus oft eða nær alltaf.
- Tæplega 70% stúlkna sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu fullorðins eru oft eða nær alltaf einmana samanborið við 26% stúlkna sem ekki hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi.
Ástæða er til að fagna þeim skýra vilja sem komið hefur fram síðastliðna daga til að koma í veg fyrir kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. UNICEF á Íslandi fagnar einnig þeim jákvæðu skrefum sem stjórnvöld hafa þegar tekið. Nú er hins vegar lag að stórauka áhersluna á forvarnir gegn ofbeldi.
Börn eru berskjölduð. Það er lagaleg skylda ríkisins og siðferðileg skylda samfélagsins í heild sinni að vernda þau á allan hátt.
Um fagaðilana sem komu að gerð tillaganna:Gögnin sem kynnt eru í dag eru hluti af skýrslu sem UNICEF á Íslandi hefur unnið að síðastliðna mánuði og kemur út í lok febrúar. Við vinnslu hennar kallaði UNICEF saman stóran hóp fagaðila sem vinna með eða í þágu barna, auk þess sem samtökin settu saman sérstakan sérfræðihóp barna í samráði við Barnahús. Haldnar voru fundaraðir um ólíkar birtingarmyndir ofbeldis: Kynferðislegt ofbeldi, einelti, heimilisofbeldi og vanrækslu. Eftirfarandi aðilar tóku þátt:
Barnaheill, Barnahús, Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, barnaverndarnefnd Reykjavíkur, Barnaverndarstofa, Blátt áfram, félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands, Fjölskyldumiðstöð Rauða krossins, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Heimili og skóli, kynferðisbrotadeild lögreglunnar, Landlæknisembættið, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Neyðarmóttaka vegna þolenda kynferðisbrota, Olweusarverkefnið, ríkissaksóknari, Samtök um kvennaathvarf, Stígamót, umboðsmaður barna, velferðarráðuneytið, verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti, Þróunarstofa heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
UNICEF þakkar þeim og sérfræðihópi barna hjartanlega fyrir ómetanlegt framlag sitt.
