Á næstunni munu um 20.000 börn í Mið-Afríkulýðveldinu hefja skólagöngu í tímabundnu skólahúsnæði sem UNICEF hefur komið á laggirnar. Þetta er meðal annars hægt fyrir tilstilli heimsforeldra UNICEF.
Heimsforeldrar gera okkur kleift að vera til staðar áður en neyðarástand brýst út, meðan á því stendur og eftir að því lýkur.
Ástandið í Mið-Afríkulýðveldinu er grafalvarlegt. Allir skólar í höfuðborginni, Bangui, hafa verið lokaðir síðan í byrjun desember í fyrra. Nærri helmingur íbúa borgarinnar hafa þurft að flýja að heiman og halda nú til í flóttamannabúðum.
UNICEF og samstarfsaðilar hafa sett upp meira en 100 tímabundnar skólastofur á svæðum þar sem flóttabörn halda til. Yfir 40 skólastofur eru þegar starfandi og 160 kennarar hafa fengið þjálfun til að kenna börnum á aldrinum þriggja til fimm ára.
UNICEF mun einnig setja upp samskonar aðstöðu í Bossangoa og nærliggjandi svæðum í norðvesturhluta landsins þar sem fólk hefur snúið aftur til heimila sinna en komið að skólabyggingum í rúst.
„Ef börnin geta ekki farið aftur í skólann þá á skólinn að koma til þeirra,“ segir Judith Léveillée, starfsmaður UNICEF. „Þetta er hugsunin á bak við þessar tímabundnu skólastofur. Um leið og búið er að tryggja öryggi á tilteknu svæði þá er það að nemendur og kennarar geti komið aftur í skólann stórt skref í átt að friði,“ segir hún.
Rétturinn til menntunar
Tímabundið skólahúsnæði er þó augljóslega einungis skammtímalausn. UNICEF mun styðja yfirvöld í landinu við að enduropna skóla landsins um leið og aðstæður leyfa.
Rétturinn til menntunar er í hvað mestri hættu á átakatímum. Þennan rétt er ákaflega mikilvægt að vernda. Skólar veita börnum ekki eingöngu nauðsynlega menntun heldur gegna þeir mikilvægu sálrænu hlutverki og skapa ramma utan um líf barnanna.
Takk kæru heimsforeldrar fyrir að gera þessa baráttu mögulega!
