23. apríl 2020

Tímamót í vinnu með Barnasáttmálann á Íslandi

Barnaheill, Umboðsmaður barna, og UNICEF á Íslandi hafa í samstarfi við Menntamálastofnun gefið út nýtt efni með ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

23. apríl 2020 Barnaheill, Umboðsmaður barna, og UNICEF á Íslandi hafa í samstarfi við Menntamálastofnun gefið út nýtt efni með ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Um er að ræða veggspjald og bækling og eru greinar Barnasáttmálans þar settar fram á aðgengilegan máta. Útgáfan er liður í vinnu við uppfærðan vef Barnasáttmálans, barnasattmali.is sem verður kynntur í haust.

Útgáfan markar ákveðin tímamót í vinnu með Barnasáttmálann en fjöldi samtaka um allan heim, sem vinna að auknum réttindum barna, munu á komandi misserum nýta sömu útgáfu af Barnasáttmálanum. Hönnunin naut góðs af áliti fjölmargra barna víðs vegar um heiminn, m.a. íslenskra barna og naut textinn stuðnings Barnaréttindarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Nýtt útlit Barnasáttmálans hefur það að leiðarljósi að gera Barnasáttmálann aðgengilegan öllum, fullorðnum og börnum. Efnið er ætlað til notkunar í skólastarfi og mun Menntamálastofnun sjá um dreifingu til grunnskóla landsins. Einnig stendur til að dreifa efninu víðar.

Barnasáttmálinn felur í sér alþjóðlega viðurkenningu á því að börn séu hópur sem hafi sjálfstæð réttindi óháð foreldrum eða forsjáraðilum og að þau þarfnist sérstakrar verndar umfram hina fullorðnu. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins hefur verið staðfestur af flestum þjóðum heims. Ísland hefur lögfest sáttmálann og felur það meðal í sér skyldur til þess að upplýsa almenning um ákvæði sáttmálans.

Það er ekki af tilviljun sem ákveðið er að kynna nýtt efni Barnasáttmálans á Sumardeginum fyrsta. Frá því upp úr aldamótunum 1900 var dagurinn helsti hátíðisdagur ungmennafélaga um land allt og árið 1921 var dagurinn gerður að stuðningsdegi fyrir börn og gengur oft undir nafninu barnadagurinn.

UNICEF berst fyrir réttindum allra barna og fagnar útgáfunni enda býður hún upp á aukin tækifæri fyrir börn á Íslandi til þess að þekkja réttindi sín. Að þekkja eigin réttindi gefur börnum verkfæri til þess að þroskast og taka þátt í samfélaginu sem fullgildir samfélagsþegnar.

Hið nýja efni má t.d. sækja hér sem bækling og hér sem plakat.

Fleiri
fréttir

20. júní 2025

UNICEF: Sláandi aukning í fjölda vannærðra barna á Gaza
Lesa meira

16. júní 2025

UNICEF fordæmir dráp á börnum í hættulegri stigmögnun í Mið-Austurlöndum
Lesa meira

12. júní 2025

Hver mun standa með börnum þegar heimsbyggðin bregst?
Lesa meira
Fara í fréttasafn