18. apríl 2008

Tolli málar 100 hús fyrir UNICEF

Listamaðurinn Tolli hefur á undanförnum vikum málað eitthundrað „skólabyggingar“ fyrir UNICEF. Þessi glæsilega húsaþyrping verður til sýnis í Saltfélaginu 18.-25. apríl. Húsin verða þá gefin UNICEF-verndurum, litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem greiða mánaðarlega til UNICEF.

Á síðasta ári var fjáröflunarverkefninu UNICEF-verndarar ýtt úr vör. Um er að ræða verkefni sem lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi leggja lið með mánaðarlegum fjárframlögum. Rennur styrkur fyrirtækjanna til uppbyggingar menntunar í hinum sárfátæku Vestur-Afríkuríkjum Síerra Leóne og Gíneu-Bissá.

Af þessu tilefni hefur listamaðurinn Tolli málað 100 „skólabyggingar“. Um er að ræða lítil pappahús og munu þau rúmlega 60 fyrirtæki sem þegar hafa gerst UNICEF-verndarar fá eitt hús hvert - til staðfestingar á stuðningi sínum. Húsin 40 sem eftir standa bíða svo nýrra verndara. Húsin eru táknræn að því leyti að fjárstyrkur UNICEF-verndara rennur m.a. til uppbyggingar skólahúsnæðis, auk þjálfunar kennara, kaupa á nauðsynlegum skólagögnum o.fl.

Sýning á húsum Tolla stendur yfir dagana 18.-25. apríl og er í samstarfi við Saltfélagið. Tolli hefur gefið UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, vinnu sína og efniskostnað.

Um UNICEF-verndara
Að bjóða litlum og meðalstórum fyrirtækjum að borga reglulega til góðgerðarmála með þessum hætti hefur ekki verið áður reynt á Íslandi. Hins vegar hefur þessi leið verið reynd á vegum UNICEF í Danmörku með mjög góðum árangri. Nú bætist UNICEF á Íslandi í hópinn og er það von samtakanna að íslensk fyrirtæki taki vel í þessa nýju fjáröflunarleið. Þegar eru rúmlega 60 fyrirtæki UNICEF-verndarar.

Styrkur UNICEF-verndara rennur til menntaverkefna UNICEF í tveimur af fátækustu löndum heims. Í Vestur-Afríku fer um 50% barna á mis við grundvallarmenntun eins og lestur og skrift og er hvergi í heiminum hærra hlutfall barna án menntunar. Íslensk fyrirtæki munu því leggja sitt af mörkum þar sem neyðin er stærst.

Með stuðningi UNICEF-verndara verður hægt að byggja skóla, þjálfa kennara og útvega skólabækur og ritföng, auk skólabekkja og krítartaflna. Það er staðreynd að menntun er besta leiðin til að rjúfa vítahring fátæktar.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn