07. febrúar 2008

Tónlist til styrktar UNICEF

Í dag verður tónlistarverkefninu The Steinsson Project hleypt af stokkunum á vefsvæðinu www.steinssonproject.com. Á síðunni er hægt að hala niður hljómplötunni Backtracking Eighties án endurgjalds og um leið styrkja menntaverkefni UNICEF með fjárframlagi að eigin vali.

Tónlistarverkefninu The Steinsson Project hefur verið hleypt af stokkunum á vefsvæðinu www.steinssonproject.com. Á síðunni er hægt að hala niður hljómplötunni Backtracking Eighties, er inniheldur fræg endurútsett popplög frá níunda áratugnum, án endurgjalds og um leið styrkja menntaverkefni UNICEF með fjárframlagi að eigin vali.

Á plötunni fer íslenskur flytjandi fyrir hópi breskra tónlistarmanna sem lagt hafa vekefninu lið. Markmið útgáfunnar er að safna nægu fé til að fjármagna byggingu og reksturs í að minnsta fimm barnaskóla í Afríkuríkinu Síerra Leóne.

Síerra Leóne er á meðal fátækustu ríkja heims. Samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóðanna um lífsgæði frá 2007 er landið í neðsta sæti af þeim 177 löndum sem skýrslan nær til á meðan Ísland er í 1. sæti. Gríðarlegur fjöldi barna býr þar við ömurleg skilyrði og fer á mis við grundvallarréttindi sem annars staðar teljast sjálfsögð. Náist markmið verkefnisins mun fjöldi vanræktra barna í Síerra Leone fá tækifæri til þeirrar menntunar sem þau eiga skilið – sem eykur á möguleika þeirra til betra lífs og bjartari framtíðar.

Backtracking Eighties
• A Good Heart
• Only You
• Mary's Prayer
• Time after Time
• I Feel like Buddy Holly
• Tainted Love
• And She Was
• Slave to Love
• Everyday I Write the Book
• Golden Brown
• Through the Barricades

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn