06. september 2006

Tvær flugur í einu höggi - áhrifarík neyðaraðstoð í Líbanon

Verið er að veita mikla neyðaraðstoð í Líbanon og hefur UNICEF þróað nýjar og áhrifaríkar leiðir til að ná sem mestum árangri fyrir sem minnst fé. Strax eftir að sprengjuárásum Ísraela lauk hóf UNICEF að dreifa miðum og hengja upp veggspjöld sem miðuðu að því að fræða fólk um hvernig UXO-klasasprengjur líta út og hvernig á að bera sig að ef fólk finnur slíkar sprengjur.

Verið er að veita mikla neyðaraðstoð í Líbanon og hefur UNICEF þróað nýjar og áhrifaríkar leiðir til að ná sem mestum árangri fyrir sem minnst fé. Strax eftir að sprengjuárásum Ísraela lauk hóf UNICEF að dreifa miðum og hengja upp veggspjöld sem miðuðu að því að fræða fólk um hvernig UXO-klasasprengjur líta út og hvernig á að bera sig að ef fólk finnur slíkar sprengjur. Þar sem UNICEF hefur einnig verið að dreifa vatnsflöskum til fólks var miðum með upplýsingum um klasasprengjur komið fyrir á vatnsflöskunum. Þannig er hægt að dreifa upplýsingum til fleira fólks og slá tvær flugur í einu höggi. Í þessarri viku verður 175 þúsund slíkum tveggja lítra vatnsflöskum (350 þúsund lítrum) dreift til fjölskyldna í Líbanon.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn