19. febrúar 2016

Tvö börn drukkna á dag í Miðjarðarhafinu

Fram­kvæmda­stjóri UNICEF, Ant­hony La­ke, seg­ir að ekki megi líta und­an slík­um hörm­ung­um. „Eng­inn set­ur barn um borð í bát ef ör­ugg­ari kost­ur er í boði,“ seg­ir­ hann.

Myndin af Ayl­an litla Kurdi látnum á baðströnd í Tyrklandi vakti heimsathygli í september. Síðan þá hef­ur börn­um sem drukkna á flótta fjölgað hratt. Lík meira en 340 barna hafa rekið á land síðan ljósmyndin birtist en talið er að mun fleiri hafi drukknað og lík þeirra ekki fund­ist.

UNICEF, Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðavinnumálastofnunin birtu í morgun óhugnanlega tölfræði: Alls látast 2 börn á dag við að reyna að komast yfir austurhluta Miðjarðarhafs, Eyjahaf. Sundið milli Tyrk­lands og Grikk­lands er ein hættu­leg­asta flótta­leið í heimi. Stofnanir kalla eftir stórbættu öryggi fyrir flóttafólk, ekki síst með því að setja fjölskyldusameiningu í algjöran forgang.

Fyrir skemmstu birti UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, nýjar tölur um að konur og börn væru nú meirihluti þess flóttafólks sem kæmi yfir landamærin til Makedóníu - en ekki karlmenn. Þetta er gjörbreytt staða. Fyrir ári voru börn um 10% flóttafólkins en eru í dag 36%.

Stofnanir bentu í morgun á að miklu meira þyrfti að gera til að berjast gegn smyglurum og mansali. Mörg barnanna sem látist hefðu í Eyjahafi hefðu verið að reyna að sameinast ættingjum sem þegar voru komnir til Evrópu. Til að minnka dánartíðnina yrði að setja í algjöran forgang að skipuleggja leiðir fyrir fólk til að ferðast löglega og á öruggan hátt inn í álfuna, til dæmis með því að gera fjölskyldusameiningu auðveldari.

Framkvæmdastjóri UNICEF, Anthony Lake, benti á að enginn setti barn um borð í bát ef annar öruggari valkostur væri í boði. Hann undirstrikaði að menn mættu ekki líta undan þessum hörmungum.

UNICEF á Íslandi minnir á að heimsforeldrar hafa veitt ómetanlega hjálp við að aðstoða börn á flótta. Mánaðarlegar gjafir þeirra gera UNICEF kleift að skipuleggja hjálparstarf sitt til lengri tíma, veita hjálp þar sem þörfin er mest, standa fyrir öflugri réttindagæslu fyrir börn og halda yfirvöldum við efnið.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn