02. desember 2005

Um 90 milljónir söfnuðust á fullveldishátíð til styrktar UNICEF

Á fullveldishátíð sem styrktaraðilar UNICEF, Baugur Group, FL Group og Fons, efndu til í Listasafni Reykjavíkur í gærkvöldi söfnuðust um 90 milljónir króna. Allur ágóði af kvöldinu mun renna til verkefna UNICEF í Gíneu-Bissá. UNICEF á Íslandi er afar þakklátt fyrir þennan mikla stuðning.

Heiðursgestir hátíðarinnar voru Sir Roger Moore, velgjörðarsendiherra UNICEF, og Lady Kristina Moore. Moore hélt ræðu og talaði um hvernig hann hefði fyrst kynnst UNICEF í gegnum Audrey Hepburn og hve mikil áhrif hún hafði haft á líf hans. Hann sagði frá atvikum úr ferðum sínum sem velgjörðarsendiherra UNICEF og hve gott og mikið starf sé unnið á vegum samtakanna í þeim löndum sem fátækari eru.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn