Bílalestum með hjálpargögn var hleypt inn í Madaya, Foua’a og Kafraya í Sýrlandi fyrr í vikunni. Bæirnir eru á meðal 15 samfélaga sem haldið er í herkví stríðandi aðila – jafnvel svo mánuðum og árum skiptir. Talið er að um 400.000 manns búi við þessar aðstæður í Sýrlandi, sem hafa í för með sér skert aðgengi að matvælum, hreinu vatni, heilbrigðisþjónustu og annarri nauðsynlegri grunnþjónstu.
Neyðin er mikil
Yfirmaður UNICEF í Sýrlandi, Hanaa Singer, var í bílalestinni sem náði til Madaya. Hún segir ástandið í bænum vera skelfilegt. Bæði börn og fullorðnir í bænum þjást af vannæringu og aðeins tveir læknar þjónusta bæinn, þar sem búa um 40 þúsund manns. Heilbrigðisþjónusta er í molum, sem lýsir sér m.a. í því að ung börn í Madaya hafa ekki fengið nauðsynlegar bólusetningar við mænusótt, mislingum eða öðrum sjúkdómum í nærri 10 mánuði.
„Fólkið sem við hittum í Madaya var úrvinda af þreytu. Læknarnir voru andlega búnir á því, eftir sólarhringsvaktir með fátt í höndunum af því sem þeir þurfa til að geta aðstoðað börn og fólk í vanda. Það er einfaldlega óásættanlegt að þetta eigi sér stað á 21. öldinni,“ segir Hanaa Singer.
Starfsfólk UNICEF og Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar náði að mæla vannæringu 25 barna undir fimm ára aldri í heimsókn sinni í bráðabirgðasjúkrahús sem komið hefur verið upp í Madaya. Af þeim reyndust 22 vera vannærð. Öll þessi börn hafa nú fengið meðhöndlun með þeim hjálpargögnum sem komið var til bæjarins í vikunni.
Meiri aðgerða er þörf
„Á sama tíma og við fordæmum stöðuna í Madaya megum við ekki gleyma því að um allt Sýrland eru 14 aðrir bæir í sömu stöðu. Þetta eru staðir þar sem ólíkir aðilar nota umsátur sem aðferð í stríði og koma þannig í veg fyrir að börn og saklausir borgarar hafi aðgang að lífsnauðsynlegum vistum og þjónustu,“ segir Hanaa Singer.
Hjálparstarfið vegna stríðsins í Sýrlandi er eitt það umfangsmesta sem UNICEF hefur nokkru sinni ráðist í.
Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn frá Sýrlandi er enn í fullum gangi. Hægt er að leggja sitt af mörkum með því að senda sms-ið UNICEF í númerið 1900 (1.900 krónur) eða styrkja hér.
Framlög heimsforeldra hafa einnig runnið markvisst til neyðaraðgerða UNICEF fyrir börn frá Sýrlandi.

