20. janúar 2016

Ungmennaráð með gjörning í dag

Með gjörningnum vill ungmennaráðið benda á að 9,1% barna hér á landi líði efnislegan skort og að ákveðnir hópar barna séu mun líklegri en aðrir til að falla milli fjalanna í samfélaginu.

Ungmennaráð UNICEF á Íslandi ætlar að vekja athygli á skýrslunni sem út kom í morgun með táknrænum gjörningi á horni Bankastrætis og Skólavörðustígs núna í dag, milli klukkan 16 og 17.
Með gjörningnum vill ungmennaráðið benda á að 9,1% barna hér á landi líði efnislegan skort og að ákveðnir hópar barna séu mun líklegri en aðrir til að falla milli fjalanna í samfélaginu.

„Ísland er eitt af efnamestu ríkjum heims og því eigum við að geta tryggt hagsmuni allra barna – það er réttur okkar samkvæmt Barnasáttmálanum,“ segir Lilja Hrund Lúðvíksdóttir meðlimur íungmennaráðinu.

Gjörningur ungmennaráðsins gengur út á að kubba turna úr Duplo-kubbum sem tákna hlutfall ólíkra hópa barna á Íslandi sem líða efnislegan skort. Ungmennaráðið stillir þannig saman turnum sem sýna hlutfall barna sem líða efnislegan skort eftir aldri, menntun og atvinnuþátttöku foreldra þeirra og hvort þeir búi í leiguhúsnæði. Ungmennaráðið ætlar að bjóða gestum og gangandi að kubba með sér og kynna sér þannig aðstæður barna sem líða efnislegan skort með táknrænum hætti.

„Við ákváðum að nota Duplo-kubba í gjörningnum okkar því þeir eru algengt barnaleikfang sem til eru á mörgum heimilum. Í því samfélagi sem við búum í eiga slík þroskaleikföng ekki að vera lúxusvarningur í augum sumra barna,“ segir Sara Mansour, formaður ungmennaráðsins.

Ungmennaráð UNICEF hvetur sem flesta til að kynna sér málefnið með því að kubba með þeim. Þau vilja jafnframt benda fólki á að lesa skýrsluna á heimasíðu UNICEF á Íslandi.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn