01. desember 2016

Ungmennaráð UNICEF á Íslandi stendur fyrir átakinu #30sek

Ungmennaráðið bendir á að í meðferð barna á flótta skorti mannúð og ábyrgð. Þessu vilja þau breyta og biðla til samfélagsins að standa saman í því að opna hjörtu okkar og landamæri fyrir flóttafólki.

Ungmennaráð UNICEF á Íslandi stendur nú fyrir verkefninu #30sek til að vekja athygli á því að á hálfrar mínútu fresti neyðist barn til að leggja á flótta sökum stríðs, fátæktar eða umhverfisáhrifa. Ungmennaráðið hefur látið gera einstaklega flotta boli sem kaupa má hér og kosta 2.800 krónur. Hver einasta króna rennur í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn frá Sýrlandi.

Ungmennaráðið bendir á að í meðferð barna á flótta skorti mannúð og ábyrgð. Þessu vilja þau breyta og biðla til samfélagsins að standa saman í því að opna hjörtu okkar og landamæri fyrir flóttafólki.

Ungmennaráðið bendir á að á síðustu misserum hafi íslenska þjóðin orðið vitni að átakanlegum réttindabrotum af hálfu yfirvalda gegn börnum á flótta. Hingað leiti fórnarlömb stríðs í von um öryggi, sanngirni og mannúð. Þeim hafi hins vegar verið mætt með óvissu, tortryggni og andúð. Þessu vilja þau breyta.

"Það er komin tími til að íslensk stjórnvöld axli ábyrgð á stríðsbrölti Vesturlandanna og sinni skyldum sínum á alþjóðlegum vettvangi. Börn eiga aldrei sök í stríði og réttur þeirra sem koma til landsins er hinn sami og ef þau hefðu fæðst hér. Ekki fleiri brottvísanir. Björgum mannslífum. Breytum sögunni," segja þau.

"Samkvæmt Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna verður sýrlenskt barn að flóttamanni á hálfrar mínútu fresti. Á þeim tíma sem tekur þig að lesa þessa yfirlýsingu hafa 2-3 saklaus börn neyðst til að yfirgefa allt sem þau þekkja og leggja af stað í ferðalag sem er óvíst hvort þau lifi af. Það eru tæplega 3.000 börn á dag. Fjöldamörg börn týnast í glundroða stríðsins og flóttans, eru seld í barnaþrælkun eða vændi, svelta, drukkna í Miðjarðarhafinu, deyja úr sjúkdómum eða falla fyrir sprengjuárásum. Hryllingurinn sem þau upplifa er ólýsanlegur. Þú getur hjálpað þessum börnum með því að kaupa #30sek bol á 2.800 kr. Bolirnir voru framleiddir á styrkjum svo ALLUR ágóði sölunnar rennur til barna á flótta."

Nánari upplýsingar má finna á fésbókarsíðu Ungmennaráðs UNICEF á Íslandi. Bolina má kaupa með því að smella hér.

Fólk getur síðan birt mynd af sér í bolnum á netinu með myllumerkinu #30sek til að lýsa yfir stuðningi sínum. Fjölmargir hafa gert það nú þegar.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn