UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, er leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn í heiminum. UNICEF á Íslandi er ein af 34 landsnefndum víða um heim sem einbeita sér að fjáröflun, rettindagæslu- og fræðslu sem byggir á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Ábyrgðarsvið:
• Skipuleggja áætlanir og fjáröflunarverkefni í samvinnu við fjáröflunarstjóra og fjáröflunardeild
• Umsjón með verkferlum og gagnagrunni er lýtur að einstaklingsfjáröflun
• Þáttaka í neyðarsöfnunum og tilfallandi herferðum
• Aðstoð við mánaðarlega innheimtu
Æskilegt er að viðkomandi hefji störf eigi síðar en 1. september, 2015
Kröfur sem viðkomandi þarf að uppfylla:
• Háskólamenntun sem nýtist starfi
• Góð samskiptahæfni
• Kunnátta á notkun félaga- og bókhaldskerfa (t.d DK, Microsoft CRM, Salesforce) er kostur
• Þekking á alþjóðlegri þróun og umræðu sem snýr að fjáröflun er æskileg
• Reynsla af mannúðarstarfi og þekking á helstu málefnum sem starf UNICEF byggir á er kostur
Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí nk.
Umsóknir skulu berast til skrifstofu UNICEF á Íslandi: unicef@unicef.is merkt: „Umsókn – Fjáröflunarfulltrúi“. Umsókninni þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi.
