05. janúar 2005

UNICEF bregst fljótt við hamförunum í Asíu

Neyðaraðstoð frá UNICEF hefur nú borist eða er komin vel á leið til þeirra svæða sem verst urðu úti eftir flóðbylgjurnar í síðustu viku. UNICEF brást strax við fréttunum af flóðbylgjunum í Asíu með sendingu 200.000 neyðarsjúkrapakka frá birgðastöðinni í Kaupmannahöfn. Nokkru síðar höfðu fimm flugvélafarmar með ýmsum neyðargögnum verið sendir.

Neyðaraðstoð frá UNICEF hefur nú borist eða er komin vel á leið til þeirra svæða sem verst urðu úti eftir flóðbylgjurnar í síðustu viku.
UNICEF brást strax við fréttunum af flóðbylgjunum í Asíu með sendingu 200.000 neyðarsjúkrapakka frá birgðastöðinni í Kaupmannahöfn. Nokkru síðar höfðu fimm flugvélafarmar með ýmsum neyðargögnum verið sendir. Um er að ræða meðal annars tjöld, ábreiður og vatnshreinsitöflur. Fleiri neyðarbirgðir eru væntanlegar, þar á meðal skólagögn sem gera börnum kleift að læra þó ekki séu hefðbundnar skólastofur fyrir hendi. Mikilvægt er að koma reglu á sem fyrst í lífi barna, eftir þær hörmungar sem þau hafa gengið í gegnum.

Yfirmaður neyðaraðstoðar UNICEF, Gerry Dyer, lýsti því yfir þann 3. janúar að stöðugri sendingu neyðargagna hafi verið komið á og verði haldið áfram.

Næstu birgðasendingar munu innihalda lyf til þess að sporna við og meðhöndla sjúkdóma eins og malaríu, kóleru, blóðkreppusótt og mislinga.

„Aðstoðin er á leiðinni,” segir Dyer. „Viðbrögð alþjóðasamfélagsins hafa verið framúrskarandi.”

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn