20. desember 2016

UNICEF fagnar brottflutningi barna frá austurhluta Aleppo - enn fjöldi barna fastur í borginni

UNICEF fagnar því að tekist hefur að flytja burt fjölda barna frá austurhluta Aleppo síðustu daga. Þrátt fyrir það er þó enn fjöldi barna fastur í borginni og bíða þess að vera flutt burt. Sum þessara barna hafa verið aðskilin frá fjölskyldum sínum, eru berskjölduð og þurfa að komast í öruggt skjól tafarlaust.

UNICEF fagnar því að tekist hefur að flytja burt fjölda barna frá austurhluta Aleppo síðustu daga. Þrátt fyrir það er þó enn fjöldi barna fastur í borginni og bíða þess að vera flutt burt. Sum þessara barna hafa verið aðskilin frá fjölskyldum sínum, eru berskjölduð og þurfa að komast í öruggt skjól tafarlaust.

UNICEF hvetur alla aðila átakanna að leyfa öruggan og tafarlausan brottflutning allra barna af svæðinu. Starfsfólk UNICEF í Aleppo aðstoðar nú við brottflutningana ásamt samstarfsaðilum sínum á svæðinu og vinnur að því að sameina fylgdarlaus börn fjölskyldum sínum.

Við mjög erfiðar aðstæður hafa UNICEF og samstarfsaðilar náð að veita neyðaraðstoð innan Aleppo og í kringum borgina og dreift hjálpargögnum til barna og fjölskyldna:

  • Á hverjum degi eru sex milljón lítrum af vatni dreift til 300.000 íbúa Aleppo. Vatnið er flutt í neyðarskýli, vatnsbrunna og skóla á meðan unnið er að því að koma vatni aftur á í öllum borgarhlutum. Nú þegar er búið að koma á vatni fyrir 800.000 íbúa;
  • Sjúkragögnum, nauðsynlegum lyfjum og öðrum hjálpargögnum er dreift til hjálparstarfsmanna, sjúkraskýla og annarra hluta borgarinnar svo hægt sé að hlúa að börnum. Um 14.000 börn hafa verið bólusett gegn mænusótt og öðrum sjúkdómum;
  • UNICEF skimar einnig fyrir vannæringu meðal barna í borginni svo hægt sé að bregðast strax við. Um 7.600 börn og konur hafa þurft að fá aðstoð til að koma í veg fyrir vannæringu;
  • Kuldinn er farinn að ógna heilsu barna á svæðinu og starfsfólk UNICEF sér nú til þess að útdeila hlýjum teppum og fatnaði til þeirra sem þurfa á að halda. Til þessa hefur UNICEF náð til 5.000 barna í útjaðri borgarinnar og vinnur nú að því að ná til enn fleiri.

Börnin í Aleppo hafa upplifað hörmungar sem ekkert barn og enginn fullorðinn á að þurfa að ganga í gegnum. Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi er enn í fullum gangi og fjöldi fólks hefur lagt henni lið síðustu daga. Slíkur stuðningur gerir okkur meðal annars kleift að bregðast skjótt við og útdeila hjálpargögnum til barna í neyð.

Hægt er að styðja neyðarsöfnun UNICEF fyrir Sýrland hér eða með því að senda sms-ið STOPP í nr 1900 (1.900 kr).

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn