18. júní 2020

UNICEF flytur tíu þúsund kórónaveirupróf til Jemen

Fyrsta sending UNICEF með 10 þúsund kórónaveiruprófum lenti í Sana‘a í Jemen í dag. Með þessum hjálpargögnum verður hægt að stórauka prófanir í Jemen þar sem tilfellum COVID-19 fjölgar hratt. Annað eins magn af prófum er væntanlegt til Aden í Jemen á næstu dögum þökk sé UNICEF.

18. júní 2020 Fyrsta sending UNICEF með 10 þúsund kórónaveiruprófum lenti í Sana‘a í Jemen í dag. Með þessum hjálpargögnum verður hægt að stórauka prófanir í Jemen þar sem tilfellum COVID-19 fjölgar hratt. Annað eins magn af prófum er væntanlegt til Aden í Jemen á næstu dögum þökk sé UNICEF.

„Þessi sending gerir okkur kleift að skima fyrir COVID-19 um allt land, grípa tímanlega inn í ef um staðfest tilfelli er að ræða og bjarga þannig lífi fólks,“ segir Sara Beysolow Nyanti, fulltrúi UNICEF í Jemen. „UNICEF heldur áfram að flytja nauðsynleg hjálpargögn til Jemen og styðja við aðgerðir til að verja börn og samfélög þeirra gegn heimsfaraldrinum.“

Frá því að fyrsta staðfesta tilfelli COVID-19 greindist í Jemen þann 10. apríl síðastliðinn hefur UNICEF flutt rúmlega 33 þúsund öndunargrímur, 33 þúsund andlitsgrímur og 18 þúsund sloppa til landsins. Þessi hjálpargögn hafa nýst 400 framlínustarfsmönnum síðastliðna þrjá mánuði í hetjulegri baráttu þeirra gegn faraldrinum. En þörfin er mikil og ofangreint aðeins um fimm prósent af hjálpargögnum tengdum COVID-19 sem UNICEF þarf á að halda í Jemen.

Skelfilegar aðstæður barna í Jemen ættu að vera öllum kunnar. Staða fólks er slæm gagnvart heimsfaraldrinum þar sem ónæmi er almennt lítið, mikil vannæring meðal barna, skortur á aðgangi að grunnþjónustu á borð við bólusetningar og heilbrigðiskerfið í molum þar sem aðeins helmingur heilbrigðisstofnana er starfhæfur eftir áralöng átök.

UNICEF kallar eftir auknum stuðningi við neyðaraðgerðir í Jemen. Samkvæmt tilkynningu frá stofnuninni kemur fram að aðeins 10 prósent hafi safnast af þeim 53 milljónum dala sem áætlað er að þurfi vegna COVID-19 aðgerða í landinu.

UNICEF þarf þinn stuðning til að halda áfram að bjarga lífum barna og fjölskyldna þeirra með því að meðal annars:

  • Útvega 30 þúsund framlínustarfsmönnum í heilbrigðiskerfinu hjálpargögn og stuðning.
  • Koma upp öruggri aðstöðu til að skima eftir COVID-19 um allt land og tryggja samfellu í þjónustu þúsunda heilbrigðisstofnana.
  • Útvega hreint og öruggt vatn og hreinlætisvörur fyrir 900 þúsund manns í einangrunarmiðstöðvum og sóttkví.

„Gjafmildi okkar stuðningsfólks í gegnum tíðina hefur með sanni bjargað lífi milljóna barna. Í COVID-19 er þessi gjafmildi okkur mikilvægari en nokkru sinni, ekki aðeins til að glíma við afleiðingar kórónaveirunnar heldur einnig að halda áfram að vinna með börnum sem eru að alast upp í verstu mannúðarkrísu veraldar í landinu,“ segir Nyanti.

UNICEF á Íslandi stendur fyrir neyðarsöfnun fyrir börn í Jemen sem búa við vatnsskort, hungur og eru berskjölduð fyrir afleiðingum COVID-19 faraldursins. Sendu sms-ið JEMEN í númerið 1900 til að styrkja UNICEF um 1.900 krónur.
Þú getur líka styrkt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi með frjálsu framlagi hér.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn