14. mars 2005

UNICEF Ísland eins árs!!

Laugardaginn 12. mars fagnaði landsnefnd UNICEF á Íslandi eins árs afmæli sínu. Af því tilefni var slegið upp barnaafmæli í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna að Skaftahlíð 24. Boðið var upp á barnaafmælisköku, djús og blöðrudýr frá dýpstu frumskógum Afríku. Barnakór Ísaksskóla söng afmælissönginn, Hótel jörð og lag úr Línu Langsokk.

Laugardaginn 12. mars fagnaði landsnefnd UNICEF á Íslandi eins árs afmæli sínu. Af því tilefni var slegið upp barnaafmæli í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna að Skaftahlíð 24. Boðið var upp á barnaafmælisköku, djús og blöðrudýr frá dýpstu frumskógum Afríku. Barnakór Ísaksskóla söng afmælissönginn, Hótel jörð og lag úr Línu Langsokk við mikinn fögnuð gesta.

Í afmælisveislunni kynnti UNICEF Ísland nýjan bækling um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem dreift verður til allra 6. og 7. bekkinga á landinu næstu daga í samstarfi við Námsgagnastofnun og Prentsmiðjuna Odda. Bæklingurinn er gerður að norskri fyrirmynd og er ætlað að fræða börn og ungmenni um réttindi sín og skyldur.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn