08. júlí 2004

UNICEF og H&M í samstarfi

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna og tískukeðjan H&M tilkynntu samstarf sitt við að auka forvarnir gegn HIV og alnæmi og styðja menntun stúlkna. Fyrsta skref samstarfsins felur í sér 107 milljóna króna framlag H&M til þriggja ára verkefnis UNICEF í Kambódíu.

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna og tískukeðjan H&M tilkynntu samstarf sitt við að auka forvarnir gegn HIV og alnæmi og styðja menntun stúlkna. Fyrsta skref samstarfsins felur í sér 107 milljóna króna framlag H&M til þriggja ára verkefnis UNICEF í Kambódíu.

Verkefni UNICEF í Kambódíu mun veita forvarnarfræðslu um HIV og alnæmi til ungs fólks í landinu og sett verður upp gjaldfrjálst númer þar sem veitt verður ráðgjöf um HIV og alnæmi. Einnig verða settir á fót stuðningshópar ungmenna og 2500 kennarar munu hljóta þjálfun í forvörnum alnæmis og HIV.

Sænska fyrirtækið H&M mun hjálpa UNICEF við „25 árið 2005“ átakið. Átak þetta stefnir að því að veita þeirri 121 milljón barna (sem flest eru stúlkur) utan skólakerfisins þá grunnmenntun sem þau eiga rétt á. Framlagið mun hjálpa þúsundum stúlkna að fá jafnan aðgang að grunnmenntun og strákar á þeirra aldri.

„Þökk sé örlátu framlagi H&M munu líf þúsunda barna breytast til batnaðar,“ sagði Carol Bellamy, framkvæmdastjóri UNICEF. „H&M sýnir hvernig fyrirtæki geta unnið að bættum hag barna.“

Rolf Eriksen, forstjóri H&M, sagði að hið nýja samstarf sýni og sanni þann skilning sem fyrirtækið hefur á félagslegri ábyrgð sinni.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn