19. október 2018

UNICEF og Te & Kaffi fagna 10 ára samstarfi

UNICEF á Íslandi og Te & Kaffi fagna 10 ára samstarfsafmæli um þessar mundir. Í tilefni af afmælinu hófst 10 daga söfnunarátak á kaffihúsum Te & Kaffi á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri í morgun. Þema átaksins í ár er að bregðast við hungri í heiminum.

UNICEF á Íslandi og Te & Kaffi fagna 10 ára samstarfsafmæli um þessar mundir. Í tilefni af afmælinu hófst 10 daga söfnunarátak á kaffihúsum Te & Kaffi á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri í morgun. Þema átaksins í ár er að bregðast við hungri í heiminum.

Te & Kaffi hefur verið ómetanlegur stuðningsaðili UNICEF á Íslandi frá árinu 2008 og safnað yfir 40 milljónum króna fyrir börn í neyð. Afmælinu og árangrinum var fagnað með afmælisveislu í Smáralindinni þar sem Páll Óskar, sem hefur kynnst starfi UNICEF í Síerra Leóne með eigin augum, steig á svið.

„Mér þykir afar vænt um samstarfið okkar. Ég hef notið þeirrar gæfu að fá að fylgjast með þessu samstarfi vaxa frá fyrsta degi, sem hefur verið virkilega gefandi. Á þessum tíu árum höfum við náð að hjálpa börnum í neyð og ég er gríðarlega stoltur af starfsfólki kaffihúsanna fyrir þennan árangur. Við erum hvergi nærri hætt heldur,“ segir Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri Te & Kaffi.

Framlögin frá kaffihúsunum og í gegnum sölu á kaffi til fyrirtækja hafa nýst í að tryggja börnum í Kólumbíu menntun, bregðast við ebólufaraldri í Vestur-Afríku, hjálpa börnum í Suður-Súdan þegar landið var á barmi hungursneyðar og útvega bólusetningar gegn mænusótt. Á ljósmyndasýningu, sem opnar í Smáralindinni á afmælisdaginn, er hægt að sjá hvernig hvernig bóluefni gegn mænusótt sem safnast á kaffihúsum Te og Kaffi ferðast á áfangastað, meðal annars til barna í Jemen, Sýrlandi og Nepal.

„Okkur finnst mjög gaman að fagna afmælinu og árangrinum saman og um leið sýna almenningi hvernig hægt er að hjálpa börnum sem búa við erfiðar aðstæður. Þetta samstarf skiptir okkur miklu máli og hefur hjálpað hundruð þúsunda barna. Fyrir það vil ég þakka starfsfólki og viðskiptavinum Te & Kaffi sérstaklega,“ segir Steinunn Jakobsdóttir, upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi.

Samhliða afmælinu munu UNICEF og Te & Kaffi fara í 10 daga söfnunarátak þar sem þemað er að bregðast við hungri í heiminum. Af hverjum seldum drykk dagana 19. – 29. október gefur Te & Kaffi andvirði 300 millilítra af næringarmjólk fyrir barn sem þjáist af bráðavannæringu og viðskiptavinum er boðið að gera það sama með því að bæta 66 krónum við bollann.

„Hungur og matvælaskortur í heiminum er því miður gífurlega alvarlegt vandamál og vannæring ógnar lífi barna víða. Við viljum leggja okkar af mörkum til að bregðast við því,“ segir Guðmundur.

Yfir 820 milljónir manns búa við hungur í dag, eða 1 af hverjum 9 í heiminum. Það er mesta hungur í heiminum í meira en áratug og neyðarástand vegna vannæringar hefur skapast víða um heim. UNICEF einsetur sér að ná til allra barna og veita börnum sem þjást af alvarlegri vannæringu viðeigandi meðferð, meðal annars með næringarmjólk og öðrum bætiefnum. Vannæring getur hljómað eins og óyfirstíganlegt vandamál en góðu fréttirnar eru þær að með réttri meðhöndlun ná langflest vannærð börn sér á einungis nokkrum vikum.

Auk þess sem söfnunarátakið fer fram á kaffihúsum Te & Kaffi er hægt að gefa næringarmjólk í gegnum vefverslun UNICEF á Íslandi hér.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn