02. maí 2016

UNICEF og WHO fordæma loftárásina á Al Quds-spítalann í Al­eppo

„Við fordæmum ógnvænlega tíðni árása á heil­brigðis­starfs­fólk og aðstöðu þess í Sýr­landi,“ seg­ir í yf­ir­lýs­ingu UNICEF og WHO.

UNICEF og Alþjóðaheil­brigðis­stofn­un­in (WHO) fordæma loftárásina á Al Quds-spítalann í Al­eppo í Sýrlandi. Meðal þeirra sem lét­ust voru tveir lækn­ar, þar á meðal einn af örfáum barna­lækn­um sem eft­ir eru í borg­inni, þrír bráðaliðar og fjöldi sjúk­linga, þar á meðal börn.

„Við fordæmum ógnvænlega tíðni árása á heil­brigðis­starfs­fólk og aðstöðu þess í Sýr­landi,“ seg­ir í yf­ir­lýs­ingu UNICEF og WHO.

„Fyr­ir fá­ein­um dög­um var kven­sjúk­dóma­lækn­ir á leið heim, eft­ir að hafa sinnt slösuðum borg­ur­um á heilsu­gæslu í Aleppo sem UNICEF styður, myrt­ur með sprengju­vörpu. Þess­ar árás­ir minna okk­ur á þá gríðarlegu erfiðleika og hætt­ur sem sýr­lensk­ir heil­brigðis­starfs­menn horf­ast daglega í augu við. Þess­ir starfs­menn verðskulda meira en aðdáun okk­ar. Þeir verðskulda aukna vernd.“

Í yf­ir­lýs­ing­unni seg­ir að árás á heil­brigðis­starfs­fólk og starfsaðstöðu þeirra, sem og það að koma í veg fyr­ir heil­brigðisþjón­ustu og flutn­inga á tækj­um og vist­um fyr­ir heil­brigðis­geir­ann í Sýr­landi sé ekki aðeins brot á alþjóðalög­um held­ur svipti það fjöl­skyld­ur og sam­fé­lög nauðsyn­legri heil­brigðisþjónustu þegar þörf­in sé mest.

Stríðandi fylkingar eru hvattar til að binda endi á all­ar árás­ir á heil­brigðisaðstöðu, starfs­fólk og sjúkra­bíla og leyfa að þeir fjölmörgu saklausu borgarar sem nú eru í sárri þörf fái heil­brigðisþjón­ustu. Þúsund­ir lífa séu að veði.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn