6. apríl 2020 Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) og UNICEF hafa tilkynnt um samstarf stofnanna í gegnum hinn sögulega COVID-19 Samstöðusjóð (e COVID-19 Solidarity Respones Fund) sem leiddur verður af sjóði Sameinuðu þjóðanna (e. United Nations Foundation) og Swiss Philanthrophy Foundation.
Sjóðurinn hefur verið settur á laggirnar til að bregðast við heimsfaraldri Covid-19 kórónaveirunnar og til að styðja við alþjóðlega aðgerðaáætlun WHO. Hluti af samkomulaginu eru að hluti af 127 milljóna dala fjármögnun sjóðsins muni renna til UNICEF til að styðja starf stofnunarinnar með viðkvæmum börnum og samfélögum um allan heim.
„Covid-19 er fordæmalaus heimsfaraldur sem þarfnast áður óþekktrar samstöðu á heimsvísu,“ segir Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri WHO. „Ég er ánægður með að UNICEF sé hluti af Samstöðusjóðnum. Með yfirgripsmikilli reynslu stofnunarinnar, bæði í fjáröflun og framkvæmd aðgerða, mun samstarfið hjálpa okkur að bjarga lífum.“
Undir þetta tekur Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF.
„Þetta er neyð af þeirri stærðargráðu að hún kallar á viðbragð af áður óþekktri stærðargráðu. Við þurfum öll að róa í sömu átt, einstaklingar, fyrirtæki, sjóðir, stofnanir og stjórnvöld um allan heim. Það gleður UNICEF að taka þátt í Samstöðusjóðnum og hann mun styrkja aðgerðir okkar í heilsuvernd og hreinlæti til að verja þá sem minnst mega sín við áhrifum COVID-19.“
Fjármunir sem safnast verður varið í samræmi við alþjóðlegu aðgerðaáætlunina og þar sem þörfin er mest.
Covid-19 Samstöðusjóðurinn var stofnaður af WHO að undirlagi UN Foundation og Swiss Philanthrophy Foundation fyrir þremur vikum síðan. Hann er sem stendur eina leiðin fyrir einstaklinga, fyrirtæki og félagasamtök til að styrkja baráttu WHO gegn Covid-19 með beinum hætti.
Sem fyrr segir hafa nú þegar safnast 127 milljónir dala, eða sem nemur 18 milljörðum króna, frá 219 þúsund einstaklingum um allan heim og yfir 90 alþjóðlegum fyrirtækjum og samtökum.
UNICEF þarf á þínum stuðningi að halda til að ná til, vernda og aðstoða viðkvæman hóp barna og fjölskyldur þeirra í erfiðum aðstæðum í heimsfaraldri Covid-19 kórónaveirunnar. Þú getur lagt þitt af mörkum með því að senda SMS-ið BARN í númerið 1900 (1.900 kr.).
Þú getur einnig styrkt söfnun UNICEF á Íslandi með framlagi að eigin vali hér.

