Laugardaginn 20. október opnar í Smáralindinni falleg og fræðandi ljósmyndasýning um ólíkar aðstæður barna í heiminum. UNICEF á Íslandi og Te & Kaffi standa að sýningunni sem sett er upp í tilefni af 10 ára samstarfsafmæli okkar.
Á síðustu 10 árum hafa UNICEF á Íslandi og viðskiptavinir Te & Kaffi tryggt börnum í Kólumbíu menntun, brugðist við ebólufaraldri í Vestur-Afríku, hjálpað börnum í Suður-Súdan þegar landið var á barmi hungursneyðar og útvegað yfir 250 þúsund bólusetningar gegn mænusótt! Ljósmyndasýningin sýnir meðal annars hvernig bóluefni sem safnast á kaffihúsum Te og Kaffi ferðast á áfangastað, meðal annars til barna í Jemen, Sýrlandi og Nepal.
Á sýningunni, sem samanstendur af 32 myndum frá öllum heimshornum, er einnig hægt að fræðast um baráttu UNICEF fyrir réttindum barna. Þar er að finna myndir frá fjallahéröðum Bangladess, flóttamannabúðum í Bekaa-dalnum í Líbanon og heilsugæslustöð í Noarðaustur-Nígeríu svo nokkuð sé nefnt.
Á opnunninni verður einnig afmæliskaka og kaffi í boði og Páll Óskar mun syngja fyrir afmælisgesti.
Sýningin er opin frá 20. – 29. október og verður staðsett fyrir framan Te & kaffi á neðri hæð Smáralindar.
Samhliða afmælissýningunni munu UNICEF og Te & Kaffi fara í 10 daga söfnunarátak þar sem þemað er að bregðast við hungri í heiminum. Af hverjum seldum drykk dagana 19. – 29. október gefur Te & Kaffi andvirði 300 millilítra af næringarmjólk fyrir barn sem þjáist af bráðavannæringu og viðskiptavinum er boðið að gera það sama með því að bæta 66 krónum við bollann.
Hungur og matvælaskortur í heiminum er því miður gífurlega alvarlegt vandamál og vannæring ógnar lífi barna víða. 821 milljónir manns búa við hungur í dag, eða 1 af hverjum 9 í heiminum. Það er mesta hungur í heiminum í meira en áratug.
Vannæring getur hljómað eins og óyfirstíganlegt vandamál en góðu fréttirnar eru þær að með réttri meðhöndlun ná langflest vannærð börn sér á einungis nokkrum vikum.
UNICEF einsetur sér að ná til allra barna og veita börnum sem þjást af alvarlegri vannæringu, viðeigandi meðferð, meðal annars með næringarmjólk.

