23. október 2005

UNICEF óskar eftir að ráða verkefnastjóra fjáröflunar

UNICEF leitar að kraftmiklum verkefnastjóra í fullt starf til að hafa umsjón með fjáröflunum UNICEF auk þess að taka þátt í öðrum verkefnum við kynningu og upplýsingagjöf. Áhugasömum er bent á að hafa samband við skrifstofuna í síma 552-6300 eða með því að senda tölvupóst á unicef@unicef.is

UNICEF leitar að kraftmiklum verkefnastjóra til að hafa umsjón með fjáröflunum UNICEF auk þess að taka þátt í öðrum verkefnum við kynningu og upplýsingagjöf.

Krafist er sjálfstæðra vinnubragða, framtakssemi, lagni í samskiptum og góðrar skipulagsgáfu. Góð ensku- og íslenskukunnátta er skilyrði. Háskólapróf í hagfræði, viðskiptafræði eða markaðsfræði æskileg eða reynsla af markaðssetningu og verkefnastjórnun.

Reynsla í greiningu tölulegra gagna æskileg.

Mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga á starfi UNICEF og láti sig velferð barna varða. Vinsamlegast skilið umsóknum til UNICEF Ísland, Laugavegi 42, 101 R eða á unicef@unicef.is fyrir 4. nóvember nk. Upplýsingar í síma 552 6300.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn