14. september 2007

UNICEF sendir hjálpargögn á jarðskjálftasvæðin á Súmötru

UNICEF sendir í dag hjálpargögn á jarðskjálftasvæðin á eyjunni Súmötru í Indónesíu. Flytja þarf hjálpargögnin frá Medan í norðurhluta Súmötru og munu þau berast til Bengkulu Utara og Muko Muko, þar sem jarðskjálftinn var harðastur, nk mánudag. Um er að ræða skólatjöld, hreinlætisvörur, vatnsdúnka, könnur, moskítónet, eldunaráhöld...

UNICEF sendir í dag hjálpargögn á jarðskjálftasvæðin á eyjunni Súmötru í Indónesíu. Flytja þarf hjálpargögnin frá Medan í norðurhluta Súmötru og munu þau berast til Bengkulu Utara og Muko Muko, þar sem jarðskjálftinn var harðastur, nk mánudag. Um er að ræða skólatjöld, hreinlætisvörur, vatnsdúnka, könnur, moskítónet, eldunaráhöld og vatnshreinsivökva. Hjálpargögnin 200.000 bandaríkjadali og munu þau gagnast 3600 fórnarlömbum.

Í vikunni reið yfir jarðskjálfti sem mældist 8.4 á Richter á vesturströnd Súmötru og er það harðasti jarðskjálftinn það sem af er þessu ári. Hann varð til þess að margir óttuðust aðra flóðbylgju líkt og gerðist annan í jólum árið 2004. Fleiri allharðir jarðskjálftar hafa fylgt í kjölfarið. Amk 13 hafa látist og þúsundir misst heimili sín. UNICEF og fleiri hjálparstofnanir sinna neyðaraðgerðum á svæðinu.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn