29. janúar 2020

UNICEF sendir neyðargögn til Kína vegna kórónaveirunnar

Unnið var að því í vöruhúsi UNICEF í Kaupmannahöfn í gær að senda neyðargögn til Kína til að aðstoða yfirvöld þar í landi í baráttunni gegn kórónaveirufaraldrinum þar í landi.

29. janúar 2020 Unnið var að því í vöruhúsi UNICEF í Kaupmannahöfn í gær að senda neyðargögn til Kína til að aðstoða yfirvöld þar í landi í baráttunni gegn kórónaveirufaraldrinum þar í landi.

Meðal þess sem fer til Wuhan-héraðsins nú eru tæplega 19 þúsund hlífðarbúningar, rúmlega 18 þúsund öndunargrímur og tæplega 1.600 skurðstofugrímur. Byggir sendingin á neyðarviðbragðsáætlun UNICEF og greiningarvinnu og þörf á svæðinu. Á meðfylgjandi myndum má sjá þegar verið var að taka saman neyðargögnin og koma þeim um borð í flugvél.

Nærri sex þúsund tilfelli kórónaveirunnar hafa verið staðfest í landinu og önnur níu þúsund eru sögð til rannsóknar þar. Alls hafa 132 látið lífið af völdum veirunnar sem hefur nú greinst í 15 löndum.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn